Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Vikuskammtur: Vika 08arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp fjölmiðlakona, Elísabet Ronaldsdóttir klippari , Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari og Gunnar Lárus Hjálmarsson aka Dr. Gunni tónlistarmaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af umræðum um innflytjendur og innviði, fréttum að stríðum og glæpum, samningum og sáttum.
Rasismi, Grindavík, rúmdýnur og stytting framhaldsskólaarrow_forward
Drífa Snædal, talskona Kvennaathvarfsins, ræðir um rasisma, innflytjendamál og stöðu VG. Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrum hæstaréttardómari ræðir opnun Grindavíkur sem hann þakkar málsókn sem hann sinnti fyrir Grindvíking. Ársæll Guðmundsson, skólameistari sem var yfir námstímanefnd sem stytti nám til stúdentsprófs, skýrir sjónarmiðin sem voru að baki hinum umdeildu breytingum. Sverrir Páll Erlingsson, fyrrverandi kennari við Menntaskólann á Akureyri verður á línunni en hann kallar styttinguna hryðjuverk. Vilmundur Möller Sigurðsson heldur því fram að tugþúsundir Íslendinga sofi illa vegna kemískra efna í rúmdýnum.
Grindavík, hlýnun, snilld og Gazaarrow_forward
Við hefjum leik í Grindavík þar sem bærinn er ekki lengur rammlæstur. Við ræðum við Vilhjálm Árnason, þingmann Grindvíkinga. Stærstu hita- og kuldamet falla nú um víða um völl svo nemur jafnvel fráviki upp á 6-7 gráður. Stefán Jón Hafstein, höfundur bókar um umhverfismál, kemur og ræðir andvaraleysið í heiminum gagnvart ógninni. Undrið Víkingur Heiðar Ólafsson píanisti er á margra vörum þessa dagana. Við fáum einn þekktasta tónlistarkrítíker landsins, Arndísi Björk Ásgeirsdóttur í heimsókn, hún ætlar að segja okkur söguna alla á bak við Víking. Síðast í þættinum kemur svo Hjálmtýr Heiðdal fyrir hönd Ísland-Palestínu, hann ætlar að greina nýjustu vendingar í stríðinu á Gaza og breyttri stefnu ríkisstjórnarinnar í innflytjendamálum.
Helgi-spjall: Steinunn Sigurðardóttirarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Steinunn Sigurðardóttir skálf og rithöfundur okkur frá lífi sínu, uppvexti og mótun, baráttu og sigrum en líka frá okkur Íslendingum, hvernig við stöndum okkur sem hópur.
Vikuskammtur: Vika 07arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Jovana Pavlović mannfræðingur, Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Gunnar Helgason rithöfundur og Árni Pétur Guðjónsson leikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af afrekum sjálfboðaliða og járnsuðumanna, deilum og átökum, viðsnúningi, hótunum og sigrum.
Mannbjörg, ríkissjóður, stríð og enginn friðurarrow_forward
Við sláum á þráðinn til Kairó þar sem Sema Erla Serdaroglu, formaður hjálparsamtakanna Solaris, vinnur með hópi fólks sem bjarga fólki frá Gaza sem hefur dvalarleyfi á Íslandi. Nú þegar hefur tekist að bjarga átta manns og von er á tólf til viðbótar á næstu dögum. Við förum yfir stöðu og getu ríkissjóðs með Ásgeiri Brynjari Torfasyni ritstjóra Vísbendingar. Höfum við efni á aðgerðum á Reykjanesi, vegna kjarasamninga og til að leysa húsnæðiskreppuna, svo dæmi séu tekin. Og hversu lengi er hægt að reka ríkissjóð með halla? Úkraínustríðið heldur fram að boðaður sigur Úkraínu og Vesturveldanna á vígvellinum er orðin fjarlægur draumur. Hvað tekur þá við? Við ræðum við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri um stríðið í Evrópu og hver er áhrif þess á Úkraínu, Evrópu og heimsmálin.
Saknaðarilmur, lestarsamgöngur, mótmæli og biskupskjörarrow_forward
Unnur Ösp Stefánsdóttir hefur skrifað leikgerð upp úr tveimur bókum Elísabetar Jökulsdóttur og leikur í henni aðalhlutverkið, eina hlutverkið. Við fáum Unni og Elísabetu til að ræða Saknaðarilm og öll þau mál sem þetta magnaða verk snertir. Björn Þorláksson ræðir við Elliða Vignisson bæjarstjóra í Ölfuss um áhrif Reykjaneselda á uppbyggingu nágrannasveitarfélaganna. Á laugardaginn verður stórfundur um Palestínu í Háskólabíói, sem Samstöðin mun senda út beint. Salvör Gullbrá Þórarinsson er ein þeirra sem skipuleggur fundinn og hún mun segja okkur frá honum, en ekki síður þeim fjölbreytilegu stjórnmálum götunnar sem orðið hafa til vegna andstöðu almennings við árásir Ísraels á Gaza. Í lokin kemur Bjarni Karlsson, prestur og guðfræðingur hjá sálgæslu- og sálfræðistofunni Haf og segir okkur hvers vegna hann vill verða biskup og hvert erindi Krists og kirkju er við samtímann.
Kjaraviðræður, laskaðir innviðir, biskupskjör og Vaðlaheiðargöngarrow_forward
Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins skýrir stöðuna í kjarasamningum. Á hverju strandar og hvers vegna? Verða verkföll eða ekki? Björn Þorláksson tekur á móti þingkonunni Hönnu Katrínu Friðriksson frá Viðreisn og ræðir við hana um hrörnandi innviði, einkum í heilbrigðiskerfinu. Ninna Sif Svavarsdóttir, prestur í Hveragerði, vill verða í biskup. Hún segir okkur hvers vegna. Leikhópurinn Verkfræðingarnir hafa sett saman sýningu um Vaðalheiðargöngin, verk sem fjallar um göngin og reyndar miklu meira til. Leikararnir Kolbeinn Arnbjörnsson og Hilmir Jensson segja okkur hvers vegna þessi göngu eru svona merkileg og saga þeirra fjarstæðukennd.
Flóttafólk, hugvíkandi efni, biskupskjör og deilurnar um MÍRarrow_forward
Við fáum Helen Ólafsdóttur Öryggisráðgjafa til að draga upp mynd af flóttafólki, hvaða fólk þetta er, hvar það er, hvert það ætlar og til hvers? Og hvaða áhrif fólkið hefur á löndin sem það sækir heim. Lilja Sif Þorsteinsdóttir sálfræðingur fjallar um það sem hún kallar hugbirtandi lyf, sem nú eru í mikilli tísku á Íslandi þótt notkun þeirra stangist á við lög. Guðmundur Karl Brynjarsson prestur í Lindakirkju er einn þeirra presta sem vill verða biskup. Við ræðum við hann um samfélagið, kirkjuna og kristni og hvers konar biskup hann vill verða. Það er deilt um MÍR fyrir héraðsdómi eins og við fjölluðum um í viðtali um daginn við fólk sem var ósátt um ákvarðanir stjórnar. Í kvöld mæta stjórnarmenn í MÍR, Sigurður H. Einarsson og Einar Bragason, og svara fyrir sig.
Helgi-spjall: Magnús Skarphéðinssonarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Magnús Skarphéðinsson frá lífi sínu og baráttu, uppvexti og mótun, átökum, sigrum og töpum.