Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Þingið, látinn leikstjóri og leigumarkaðurinnarrow_forward
Við byrjum Rauða borðið á nýjum dagskrárlið: Þingið í umsjón Björns Þorláks. Hann fær til sín þrjá þingmenn tiil að ræða stöðuna og vikuna fram undan: Logi Einarsson frá Samfylkingu, Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn og Þórarinn Ingi Pétursson frá Framsókn. Rimas Tuminas leikstjóri hafði mikil áhrif á íslensk leikhús og það fólk sem vann með honum. Leikararnir Guðrún Gísladóttir, Jóhann Sigurðarson og Hilmir Snær Guðnason og túlkurinn hans , Ásdís Þórhallsdóttir leiksviðsstjóri, minnast Rimasar við Rauða borðið en hann lést 6. mars. Í lokin kemur Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna og ræðir vonbrigði sín með kjarapakka stjórnvalda sem hann segir að muni lítið sem ekkert bæta stöðu leigjenda.
Helgi-spjall: Einar Þór Jónssonarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Einar Þór Jónsson okkur frá lífi sínu og baráttu, uppvexti og þroska á tímum sem menn eins og hann voru ekki velkomnir í samfélaginu, áhrifin af alnæmi á hans líf, áhrif heilabilunar á aðstandendur en þó mest um sigra og gleði.
Vikuskammtur: Vika 11arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Kristín Eiríksdóttir rithöfundur, Sherry Ruth verkakona, Viktor Orri Valgarðsson stjórnmálafræðingur og Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson nýdoktor í heimspeki og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af undirritun kjarasamninga og deilum um þá, vangaveltum um forsetaframboð, mansali, hryðjuverkum og Eurovison á tímum þjóðarmorðs.
Vondir samningar, baráttuleiðir, hnignun Bretlands og fíklararrow_forward
Ragnar Þór Ingólfsson kemur að Rauða borðinu og segir hvers vegna hann er óánægður með samningana sem hann var að undirrita. Hjörtur Hjartarson frá Stjórnarskrárfélaginu, Salvör Gullbrá Þórarinsson frá Félaginu Ísland-Palestína og Guðmundur Hrafn Arngrímsson frá Leigjendasamtökunum ræða um baráttuleiðir sem samtök þeirra nota. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur segir okkur frá hrörnun Bretlands. Dagbjört Ósk Steindórsdóttir og Jón K Jacobsen aka Nonni Lobo frá samtök aðstandenda og fíknisjúkra og Gunnar Ingi Valgeirsson, sem heldur úti þáttunum Lífið á biðlista, koma í lokin og ræða stöðu fíkla í samfélaginu.
Leigumarkaður, Chris Smalls og moldinarrow_forward
Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dregur upp mynd af íslenskum leigumarkaði sem hann segir að sé á vondum stað. Margt bendir til að miklar hækkanir séu fram undan. Andrea Helgadóttir er áhugamanneskja um alþjóðlega verkalýðshreyfingu. Hún segir okkur frá verkalýðshetjunni Chris Smalls sem er að koma til landsins. Ólafur Arnalds prófessor segir okkur svo frá moldinni sem bæði nærir okkur og mótar. Hvað verður um okkur þegar næringamáttur moldarinnar hverfur?
Kjarasamningarnir, kulnun og baráttan um háskólannarrow_forward
Þau koma til okkar hagráð verkalýðsins, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur BSRB, Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur BHM og fara yfir stöðu efnahagsmála í kjölfar nýgerðra kjarasamninga. Eru þeir sögulegir? Munu lífskjör almennings batna? Kristín Þóra Haraldsdóttir er höfundur, leikstjóri, leikari og umfjöllunarefni einleiksins Á rauðu ljósi, sem er allt í senn leikrit, uppistand og fyrirlestur um kulnun. Við ræðum við hana um hvernig við örmögnumst og hvaða leið er út úr því standi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskólaráðherra er að breyta fjármögnun háskólanna til að stýra uppbyggingu þeirra. Eiríkur Smári Sigurðarson rannsóknastjóri og sérfræðingur við hugvísindasvið Háskóla Íslands kemur að Rauða borðinu og ræðir um átökin um háskólanna, um hver eigi að stýra þróun þeirra.
Kjarasamningar, hommasýning og ópíumarrow_forward
Við byrjum á að fá Stefán Ólafsson prófessor og starfsmann Eflingar til að skýra út kjarasamningana sem voru undirritaðir fyrir helgi. Þeir þykja sögulegir fyrir hversu mikið af kjarabótunum eiga að koma frá stjórnvöldum. Við ræðum síðan við þá Rúnar Guðbrandsson leikstjóra og leikarana Árna Pétur Guðjónsson og Sigurð Edgar Andersen um verkið …..og hvað með það? Þetta er verk um homma, ofbeldi og ást. Og við ræðum þetta allt við þá félaga. Það geisar ópíóðafaraldur á Íslandi og fólk deyr af hans völdum. Við ræðum við Valgerði Rúnarsdóttur, yfirlækni á Vogi, um hvað veldur og hvað beri að gera? Og spyrjum um sjúklinga Árna Tómasar Ragnarssonar læknis, sem fengu dagleg morfínskammt en fá hann ekki lengur.
Helgi-spjall: Elísabet Rónaldsarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Elísabet Rónaldsdóttir klippari okkur frá Hollywood og leið sinni þangað, frá baslinu og meðvirkninni, frá ástinni og ástríðunni, frá seiglunni og óþekktinni og öðru því sem búið hefur hana til.
Vikuskammtur: Vika 10arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Amnesty International á Íslandi, Helga Arnarsdóttir fjölmiðlakona, Sigrún Elsa Smáradóttir framkvæmdastjóri og Sverrir Norland rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af kjarasamningum, félagsmálapökkum, handtökum, hótunum, hörku og huggulegheitum.
Fíklar, orð gegn orði, öryrkjar og innflytjendur í Lúxarrow_forward
Alma D. Möller landlæknir kemur að Rauða borðinu og ræðir um stöðu fólks með fíknisjúkdóma, ekki síst út frá málum Árna Tómasar Ragnarsson læknis sem sviptur var leyfi til að gefa út ópíóðalyf. Þarf átak til að bæta líf og heilsu fíklanna? Er hægt að standa hjá þegar svo margir farast? Einleikurinn Orð gegn orði hefur slegið í gegn. Ebba Katrín Finnsdóttir leikari og Þóra Karitas Árnadóttir leikstjóri ræða um verkið og erindi þess, en þar er fjallað um hvernig dómskerfið leikur þolendur kynferðisofbeldis. Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ fer yfir afstöðu bandalagsins til tillagna félagsmálaráðherra um breytingar á almannatryggingum. Við sláum svo á þráðinn til Lúxemborgar og fáum Róbert Björnsson, sem segist vera efnahagslegur flóttamaður frá Íslandi, til að segja okkur hvernig þarlend stjórnvöld hafa tekið á mun hraðari fjölgun landsmanna en hér hefur orðið.