Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Trump, Grindavík, biskup og mannátarrow_forward
Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur kemur að Rauða borðinu og ræðir um sigurgöngu Donald Trump, hvaða hann kemur og hvert hann ætlar og hvað veldur því að bandarísk stjórnmál snúast um þennan mann. Pétur Rúðrik Guðmundsson er einn þeirra Grindvíkinga sem hefur farið fram á að bæjarstjórnin boði til íbúafundar. Við spyrjum hann hvers vegna. Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholti er einn þeirra presta sem vilja verða næsti biskup. Við ræðum við hann um kirkju og kristni og hlutverk þessa í samfélaginu í dag. Kannibalen er leikrit um mannát og einmanaleika sem sýnt er í Tjarnarbíói. Leikararnir Fjölnir Gíslason og Adolf Smári Unnarsson og leikstjórinn Adolf Smári Unnarsson segja okkur hvers vegna maður sem vill éta annan mann og annar sem vill verða étinn eiga erindi við okkur í dag.
Helgi-spjall: Guðjón Bjarnasonarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Guðjón Bjarnason arkitekt og myndlistarmaður frá ferð sinni um lífið sem leitt hefur hann víða um heim og inn í marga heima.
Vikuskammtur: Vika 04arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Birgir Þórarinsson aka Biggi veira tónlistamaður, Esther Bíbí Ásgeirsdóttir tónlistarkona, Freyr Eyjólfsson upplýsingafulltrúi og Karen Kjartansdóttir almannatengill og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af jarðhræringum, skjálfta í stjórnmálum, óvæntum tíðindum, deilum, stríði og vonbrigðum.
Stéttabarátta og hælisleitendurarrow_forward
Sólveig Anna Jónsdóttir kemur að Rauða borðinu og lýsir stöðunni í kjaraviðræðum. Hafa fyrirtækjaeigendur skipt um kúrs? Eru verkföll fram undan? Vilja stjórnvöld nota Grindavík til að draga úr launakröfum? Við höldum áfram að ræða málefni hælisleitenda og innflytjenda af gefnu tilefni. Nú koma þau Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, og Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður og skiptast á skoðunum um stöðu hælisleitenda, umræðuna um málaflokkinn, stöðu innviða og grunnkerfa, glæpi og allskonar sem blandast þeirri umræðu.
Hælisleitendur, Gaza og auðlindirnar okkararrow_forward
Þingmennirnir Jón Gunnarsson frá Sjálfstæðisflokknum og Björn Leví Gunnarsson Pírati deila við Rauða borðið um hælisleitendur og innflytjendur, en líklega eru þeir sitthvor endinn á deilunum í þingsal um þessi mál. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur lýsir stöðunni á Gaza og metur hvert sú hörmung getur leitt. Í lokin kemur Indriði Þorláksson og fjallar um Auðlindina okkar, nefndarvinnu sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra stóð fyrir.
Innflytjendamál, háskólar og bíó Palestínaarrow_forward
Innflytjendamál er sannarlega komin á dagskrá þjóðmálanna, ofan á öll óleystu vandamálin. Þingfólkið Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Pírati, Bergþór Ólason frá Miðflokknum og Sigmar Guðmundsson frá Viðreisn koma að Rauða borðinu og ræða málin. Það gera líka Guðbjörn Guðbjörnsson, formaður Tollstjórafélagsins og stjórnsýslufræðingur, Hallur Magnússon sem rekur fyrirtæki í byggingabransanum og Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International. Þeir spá í áhrifin af útspili Bjarna Benediktssonar á stjórnmálin. Það stendur til að sameina háskólana á Bifröst og Akureyri og um það eru ekki allir sáttir. Grétar Þór Eyþórsson deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir deildarforseti félagsvísindadeildar á Bifröst skiptast á skoðunum. Í lokin kemur Esther Bíbí Ásgeirsdóttir umsjónarkona Bíóteks Kvikmyndasafnsins og segir okkur frá palestínskum bíómyndum sem hún ætlar að sýna í Bíó Paradís.
Aðgerðaáætlun, rasismi og útlendir fangararrow_forward
Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur og Páll Valur Björnsson kennari koma að Rauða borðinu og gera upp aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar til að tryggja öryggi Grindvíkinga. Er þetta nóg? Eða nógu skýrt? Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur ræðir um rasisma á Íslandi í tilefni af Facebook-færslu Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins þar sem hann sagði mótmælastöðu fólks frá Palestínu á Austurvelli vera hörmungin ein. Í lokin kemur Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur og fjallar um erlenda fanga í íslenskum fangelsum, en um fjölda þeirra hefur verið fjallað í umræðunni og bent á sem dæmi um varasamar afleiðingar fjölgunar innflytjenda.
Helgi-spjall: Tyrfingur Tyrfingssonarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið skýrir Tyrfingur Tyrfingsson út hvers vegan hann er eins og hann er, hvað mótaði hann og hvert han stefnir.
Vikuskammtur: Vika 03arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson doktorsnemi, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Lóa Hjálmtýsdóttir myndlistar- og tónlistarkona og Margrét Pétursdóttir verkakona náttúruhamförum, deilum, átakafundum, mótmælum og tapi í handboltaleikjum.
Upplausn í kjaraviðræðum, flóttabörn og Grindavíkarrow_forward
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir okkur frá snúinni stöðu í kjaraviðræðum. Hanna Símonardóttir fósturmóðir palestínska drengsins Yazan segir okkar frá stöðu drengsins og frænda hans, hryllingnum á Gaza en einnig frá sér og reynslu sinni sem fósturmóðir margra barna. Fjórir þingmenn Suðurlandskjördæmis koma að Rauða borðinu og ræða Grindavík: Oddný Harðardóttir frá Samfylkingu, Jóhann Friðrik Friðriksson frá Framsókn, Guðbrandur Einarsson frá Viðreisn og Birgir Þórarinsson frá Sjálfstæðisflokknum. Í lokin fer Páll Baldvin Baldvinsson leikstjóri, fyrrum leiklistargagnrýnandi og dagskrárstjóri, yfir íbúafund Grindvíkinga í Laugardalshöll sem var sögulegur og dramatískur.