Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Opinberir starfsmenn, Grindvíkingar, Orban og handboltinn

Opinberir starfsmenn, Grindvíkingar, Orban og handboltinnarrow_forward

S05 E013 — 01/17/2024

Við ræðum kjaramál opinberra starfsmanna við Þórarinn Eyfjörð formaann Sameykis, Magnús Þór Jónsson formann Kennarasambandsns og Steinunni Bergmann formann Félagsráðgjafafélags Íslands. Hvernig meta þau stöðuna í yfirstandandi viðræðum og hvaða áhrif þær muni hafa á samningaviðræður opinberra starfsmanna. Íbúafundur Grindvíkinga í Laugardalshöllinnivar stórmerkur. Petra Rós Ólafsdóttir skrifstofustjóri, stjórnarkona knattspyrnudeildarinnar og slysavarnarkona, Sigríður María Eyþórsdóttir tónlistarkona, kirkjuvörður og tónmenntakennari, Páll Valur Björnsson kennari og Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélagsins koma til okkar og gera upp fundinn. Við sláum svo á þráðinn til Budapest í tilefni af því að Ungverska landsliðið niðurlægði það íslenska í gær. Freyr Rögnvaldsson blaðamaður segir okkur frá íþróttastefnu Viktors Orban og hvernig hún tengist stjórnarmálaviðhorfum hans. Í lokin spilum við svo raddir Grindvíkinga, eins og þær birtust á íbúafundinum í Laugardalshöll.

RÚV, forseti, Grindavík og Vestmannaeyjagosið

RÚV, forseti, Grindavík og Vestmannaeyjagosiðarrow_forward

S05 E012 — 01/16/2024

Það hefur verið deilt um fréttaþjónustu Rúv undanfarið og tengist skyldum Ríkisútvarpsins og öryggishlutverki – ekki síst í náttúruhamförum. Björn Þorláks ræðir nú við Boga Ágústsson fréttaþul og fyrrum fréttastjóra Rúv um ýmis álitaefni. Sigríður Hrund Pétursdóttir vill verða forseti og ætlar í framboð. Við spyrjum hvers vegna. Dagmar Valsdóttir rak gistiheimili í Grindavík og vann á leikskólanum. Líf hennar er nú í upplausn eins og samfélagið í Grindavík. Við fáum hana til að segja reynslu sína. Eftir gosið í Vestmannaeyjum voru þeir bræður Gísli og Arnþór Helgasynir með þáttinn Eyjapistill í Ríkisútvarpinu, fjölluðu þar um samfélag á flótta undan náttúruhamförum og límdu að að mörgu leyti saman. Gísli Helgason rifjar upp þessa tíð við Rauða borðið.

Grindavík, náttúruvá, Mútter Courage og kratabærinn

Grindavík, náttúruvá, Mútter Courage og kratabærinnarrow_forward

S05 E011 — 01/15/2024

Feðgarnir Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur og Einar Hannes Harðarson formaður Sjómannafélags Grindavíkur koma til okkar og segja okkur frá baráttu Grindvíkinga fyrir að fá frið fyrir lánadrottnum, til að hafa öruggt húsnæði og losna við afkomukvíða meðan náttúran rífur bæinn þeirra í tvennt. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir Reykjaneselda og hvernig draga má úr hættunni af þeim. Þjóðleikhúsið setti umm stríðsádeiluna Mútter Courage á vorum tímum, þegar flestir landsmanna líta á Úkraínustríðið sem heilagt stríð. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona og Una Þorleifsdóttir leikstjóri segja okkur hvers vegna og ræða um erindi verksins og uppfærslunnar. Í lokin kemur Sigurður Pétursson sagnfræðingur og segir okkur frá kratabænum Ísafirði, risi hans, blómatíma og falli, en líka því hvort að þar hafi grasserað spilling, eins og oft er haldið fram um þær stofnanir og félög sem alþýðan stjórnar.

Helgi-spjall: Dr. Gunni

Helgi-spjall: Dr. Gunniarrow_forward

S05 E010 — 01/13/2024

Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Gunnar Lárus Hjálmarsson og segir okkur hvaðan hann kom, hvað mótaði hann og hvers vegna hann er eins og hann er.

Vikuskammtur: Vika 02

Vikuskammtur: Vika 02arrow_forward

S05 E009 — 01/12/2024

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Magga Stína tónlistarkona, Björn Kristjánsson kennari og tónlistarmaður, Máni Pétursson umboðsmaður og útvarpsmaður og Rósa María Hjörvar bókmenntafræðingur og kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum og upphafningu, dómum og ásökunum, von og vonbrigðum.

Ástandið á stjórnarheimilinu og hugrekki almennings

Ástandið á stjórnarheimilinu og hugrekki almenningsarrow_forward

S05 E008 — 01/11/2024

Við ræðum ástandið á stjórnarheimilinu og pólitíkina við fólk sem hvert um sig á pólitískar rætur í einum af fjórflokknum: Andrés Skúlason, Jón Kristinn Snæhólm, Helga Vala Helgadóttir og Hallur Magnússon greina stöðuna fyrir okkur og spá fyrir um framhaldið. Björn Þorláksson blaðamaður fer svo með ávarp sitt og óskar landsmönnum hugrekkis á næsta ári.

Lekamálið, heimilislækna og Edda

Lekamálið, heimilislækna og Eddaarrow_forward

S05 E007 — 01/10/2024

Blaðamennirnir Atli Þór Fanndal og Jón Bjarki Magnússon fjölluðu um leikamálið á sínum tíma og koma að Rauða borðinu til að rifja það upp í tilefni af frásögnum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur um áhrif þessa máls á sig persónulega. Margrét Ólafía Tómasdóttir formaður Félag íslenskra heimilislækna kemur til okkar og ræðir um heilbrigðiskerfið og ágalla þess. Í lokin kemur Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri og ræðir um Eddu og erindi hennar til samtímans.

Mið-Austurlönd, dauðalisti fíkla og norræna samningslíkanið

Mið-Austurlönd, dauðalisti fíkla og norræna samningslíkaniðarrow_forward

S05 E006 — 01/09/2024

Magnús Bernharðsson prófessor kemur til okkar og skýrir stöðuna í Mið-Austurlöndum og hættuna á að átökin þar breiðist út. Dagbjört Ósk Steindórsdóttir, Anna Steindórsdóttir og Þröstur Ólafsson eru öll aðstandendur sem taka þátt í aðgerðarhópi til að berjast fyrir rétti fíkla til heilbrigðisþjónustu og mannvirðingu. Þau segja okkur frá baráttunni. Sonur Guðmundu Guðmundsdóttur hefur verið lengi á bið eftir meðferð. Hún segir okkur frá stöðu sonar síns og barnabarn hennar, María Mist Þórs Sigursteinsdóttir, segir okkur frá reynslu sinni sem barn fíkils. Í lokin fer Magnús Norðdahl lögmaður Alþýðusambandsins yfir norræna vinnumarkaðsmódelið, hvað þarf til að það virki og hvers vegna Íslendingar hafa farið aðra leið.

Kjaraviðræður, forsetaframboð og gervigreind

Kjaraviðræður, forsetaframboð og gervigreindarrow_forward

S05 E005 — 01/08/2024

Við fáum Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar til að segja okkur hver staðan í kjaraviðræðunum er, hvort verið sé að semja og þá um hvað. Eða það sem hún má segja um þetta? Arnar Þór Jónsson lögmaður var fyrstur til að tilkynna framboð til forseta. Við spyrjum hann um hvernig forseti hann vill verða og hvernig hann metur stöðuna í samfélaginu og stjórnmálunum. Í lokin kemur Þórhallur Magnússon prófessor við tónlistardeild Sussex háskóla og segir okkur frá skapandi gervigreind og öllum þeim álitamálum sem hún dregur fram. 

Helgi-spjall: Sveinn Rúnar

Helgi-spjall: Sveinn Rúnararrow_forward

S05 E004 — 01/06/2024

Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Sveinn Rúnar Hauksson okkur frá sjálfum sér, æsku og uppruna, veikindum og sigrum, samferðafólki og baráttu.v

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí