Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Vikuskammtur: Vika 06

Vikuskammtur: Vika 06arrow_forward

S05 E033 — 02/09/2024

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Dóra Ísleifsdóttir grafískur hönnuður, Hallveig Rúnarsdóttir söngkona, Eyrún Magnúsdóttir blaðakona og Björn Brynjúlfur Björnsson leikstjóri og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af hamförum, hetjulegri björg, sigrum, harðnandi deilum, ógnargróða og kulda.

Reykjaneseldar

Reykjaneseldararrow_forward

S05 E032 — 02/08/2024

Rauða borð kvöldsins verður tileinkað að mestu eldsumbrotum á Reykjanesi og afleiðingum þeirra. Við ræðum við Pál Þorbjörnsson fasteignasala frá Grindavík sem nú býr í Reykjanesbæ, þar sem er heitavatnslaust. Páll Valur Björnsson hefur líka verið á flótta frá í nóvember og segir okkur hvaða áhrif Reykjaneseldar hafa á fólk. Við fáum Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing til að greina stöðuna og sláum á þráðinn til fólks í Reykjanesbæ: Hilmar Braga Bárðarson fréttastjóra Víkurfrétta og Sigurjóns Magnúsar Egilsson blaðamanns sem býr í Njarðvík. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri kemur í þáttinn eftir fund með almannavörnum og lýsir áföllum dagsins og til hvaða aðgerða verður gripið. Vilhjálmur Árnason þingmaður Grindvíkinga fer yfir hvað pólitíkin og stjórnvöld þurfa að gera. 

Björgun barna, útlendingaandúð, mislingar og Ástþór

Björgun barna, útlendingaandúð, mislingar og Ástþórarrow_forward

S05 E031 — 02/07/2024

Við byrjum á því að slá á þráðinn til Kairó þar sem rithöfundarnir Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Kristín Eiríksdóttir og blaðakonan María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp hafa heimt móðir og þrjú börn hennar af Gaza. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði ræðir áhrif hælisleitenda og innflytjenda á stjórnmál í Evrópu og hér hema. Erla Dóris Halldórsdóttir sagnfræðingur og hjúkrunarfræðingur segir okkur síðan frá mislingum, berklum, holdsveiki og öðrum skæðum pestum. Í lokin kemur Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi að Rauða borðinu og segir frá sér, framboði sínu, stefnu og sýnum.

Reykjavíkurflugvöllur, heilabilun, bændur og frjálshyggja

Reykjavíkurflugvöllur, heilabilun, bændur og frjálshyggjaarrow_forward

S05 E030 — 02/06/2024

Örn Sigurðsson arkitekt og Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafa ólíkar hugmyndir um Reykjavíkurflugvöll og Vatnsmýrina. Björn Þorláksson stýrir samræðum þeirra um þetta hitamál. Leikritið Með Guð í vasanum fjallar um heilabilun, áhrif hennar á einstaklinginn og fjölskyldu hans. María Reyndal höfundur og leikstjóri og Katla Margrét Þorgeirsdóttir aðalleikkona koma að Rauða borðinu og ræða verkið, erindi þess og reynslu sína af veikindum aldraðs fólks. Trausti Hjálmarsson sauðfjárbóndi Austur-Hlíð í Biskupstungum vill verða formaður Bændasamtakanna, hefur boðið sig fram gegn sitjandi formanni, Gunnari Þorgeirssyni garðyrkjubónda í Ártanga í Grímsnesi. Hvað vill Trausti með samtökin? Hvernig sér hann íslenskan landbúnað þróast. Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur hefur skrifað greinar um frjálshyggjuna. Við grípum tækifærið og ræðum við hann um þennan landsins forna fjanda.

Palestína, stjórnarskrá, biskup og fíknisjúkir

Palestína, stjórnarskrá, biskup og fíknisjúkirarrow_forward

S05 E029 — 02/05/2024

Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur, Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi hafa allar reynslu og þekkingu af málefnum Palestínu og Mið-Austurlanda og draga upp fyrir okkur hver staðan er í dag, hver er ástæða hennar og hvernig hún getur þróast. Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði veltir fyrir sér mikilvægi stjórnarskráa og hvers vegna svona sein t gengur að breyta núgildandi stjórnarskrá. Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur í Grafarvogskirkju vill verða biskup og ræðir við okkur um erindi Krists, kristni og kirkju og hlutverk biskups. Kristinn Magnússon og Jón K Jacobsen aka Nonni Lobo eru fíklar í bata sem þekkja heimilisleysi, fangelsi og veruleika uppkominna barna alkóhólista. Þeir ræða við okkur um stöðu fíknisjúkra í samfélagi sem hefur fordóma gagnvart fíklum.

Helgi-spjall: Lára Martin

Helgi-spjall: Lára Martinarrow_forward

S05 E028 — 02/03/2024

Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Lára Marteinsdóttir frá lífi sínu, hugmyndum og baráttu; hvernig það var að koma út úr skápnum fyrst lesbía og hvernig stjörnur, erkitúpur og lófalestur getur veitt okkur leiðsögn.

Vikuskammtur: Vika 05

Vikuskammtur: Vika 05arrow_forward

S04 E027 — 02/02/2024

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson blaðamaður, Harpa Kristbergsdóttir aðgerðarsinni, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir uppistandari og handritshöfundur og Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari og viðskiptafræðingur ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af óveðri, ósætti og óróa, framboðum og óljósri eftirspurn, hávaða og þöggun.

Kristni, MÍR, æxli og fátækt

Kristni, MÍR, æxli og fátæktarrow_forward

S05 E026 — 02/01/2024

Við höldum áfram að ræða við biskupsefni um samfélagið okkar og erindi kristni og kirkju við það. Nú er komið að Elínborgu Sturludóttur dómkirkjupresti. Það er deilt um MÍR, Menningartengsl Íslands og Rússlands, fyrir héraðsdómi. Alexandra Argunova aka listakonan Kjuregej, Sigurður Þórðarson eftirlaunamaður og Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður koma að Rauða borðinu og segja okkur hvers vegna stór hópur félagsmanna er ósáttur við ákvörðun stjórnar að leggja niður félagið. Hrafnkell Karlsson organisti segir okkur sjúkrasögu sína en hann fékk æxli innan hryggjarsúlunnar fyrir fáeinum árum og er að komast til fullrar heilsu. Í lokin kemur Sæmundur Þór Helgason myndlistarmaður og segir okkur frá sýningu sinni: Af hverju er Ísland svona fátækt? 

Leigjendur, Gaza, sjúkrasaga og biskupskjör

Leigjendur, Gaza, sjúkrasaga og biskupskjörarrow_forward

S05 E025 — 01/31/2024

Við ræðum stöðu leigjenda í kjarasamningum við Ragnar Þór Ingólfsson formann VR og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formann Leigjendasamtakanna. Allar kjarabætur leigjenda á undanförnum árum hafa runnið til leigusala. Verður það svo áfram? Elín Jakobína Oddsdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði á skurðstofum á Gaza og tók á móti fórnarlömbum aðgerða Ísraelshers. Hún segir okkur frá sárum þessa fólks og raunum. Yngvi Ómar Sighvatsson kemur og segir okkur sjúkrasögu þriggja ættliða, hans sjálfs, móður hans og sonar, og reynslu þeirra af heilbrigðiskerfinu. Sem er ekki góð. Í lokin kemur Helga Soffía Konráðsdóttir prestur í Háteigskirkju og prófastur í Reykjavikurprófastdæmi vestra, ein þeirra sem rétt hafa upp hönd og boðið sig fram til biskups, og ræðir um erindi kristni og kirkju til samfélagsins og einstaklinganna innan þess.

Spilling, Kína og hinir fátæku sem munu landið erfa

Spilling, Kína og hinir fátæku sem munu landið erfaarrow_forward

S05 E024 — 01/30/2024

Transparency International sendi frá sér spillingarvísitölu fyrir öll lönd heims í morgun og þá kom í ljós að vísitala Íslands lækka enn. Við fáum Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Transparency til segja okkur hvers vegna. Kjartan Pétur Sigurðsson fjarskiptatæknifræðingur hefur búið lengi í Kína og við fáum hann að Rauða borðinu til að lýsa sinni upplifunaf samfélaginu þar og hvert það stefnir. Sigurvin Lárus Jónsson fríkirkjuprestur hefur skrifað greinar um kirkjuna sem pólitíska hreyfingu. Við fáum hann til að segja okkur frá pólitík kirkjunnar.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí