Alþýðusamband Íslands telur að grunnatriði frumvarps til laga um leigubifreiðaakstur séu hvorki nægilega vel undirbúin né rökstudd. Þetta kemur fram í umsögn sem ASÍ hefur veitt um þetta frumvarp innviðaráðherra.
Vakin er athygli á að í Kaliforníu í Bandaríkjunum hafi verið horfið frá fyrri breytingum sem sagðar hafi verið í „frjálsræðisátt“ en leitt hafi aukna fátækt og réttindaleysi yfir leigubifreiðastjóra.
Í umsögninni kemur m.a. fram að ASÍ telji rétt að hinkra með þær breytingar sem frumvarpið boðar. Lagt er til að fylgst verði með þeim breytingum sem í vændum séu í nágrannaríkjum og þá sérstaklega á Norðurlöndum.
Alþýðusambandið hefur ítrekað veitt umsögn um mál þetta. Vakin er athygli á að þrátt fyrir að sambandið hafi bent á greinilega galla á lagasetningunni og rökstutt þær ábendingar sé í frumvarpinu hvergi gerð tilraun til að bregðast við þeim.
Umsögn ASÍ um frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur má nálgast hér.
Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu. Þú getur skráð þig hér: Skráning félaga