Formenn ASÍ andmæla ekki verkbanni

Formannafundur Alþýðusambandsins sendi frá sér ályktun áðan þar sem verkbanni Samtaka atvinnulífsins er ekki andmælt, hvað þá fordæmt. Ekkert hefur komið frá Alþýðusambandinu um þá ákvörðun SA að senda yfir 20 þúsund Eflingarfélaga launalaust heim á fimmtudaginn næsta.

Ályktun formannafundarins sneiðir fram hjá kjaradeilu Eflingar og SA en ákallar stjórnvöld vegna samninga sem taka við af þeim sem renna út eftir tæpt ár.

„Alvarlegar aðstæður ríkja í íslensku samfélagi.  Átök á vinnumarkaði, mikil verðbólga og hnignun velferðarkerfisins eru til marks um að stjórnvöldum hefur mistekist að leggja grunn að efnahagslegum og samfélagslegum stöðugleika,“ segir í ályktuninni. „Gjaldþrot efnahags- og fjármálastefnu síðustu ríkisstjórna blasir nú við launafólki. Neyðarástand á húsnæðismarkaði, fasteignabóla, veiking heilbrigðiskerfis, aukin fákeppni og skattkerfi sem þjónar þeim eignamestu eru ekki á ábyrgð launafólks.  

Verkalýðshreyfingin hefur um árabil varað við því að stefna misskiptingar og varðstaða um sérhagsmuni muni kynda undir óstöðugleika. Stöðugleiki á vinnumarkaði er hvorki sjálfsprottinn né sjálfgefinn. Stöðugleiki er afleiðing ákvarðana ábyrgra stjórnmálamanna um að skapa sátt um skiptingu verðmætasköpunar í samfélaginu og standa vörð um sterkt velferðarkerfi. Sjaldan hefur varðstaða um sérhagsmuni birst landsmönnum svo skýrlega sem nú. 

Formannafundur Alþýðusambands Íslands fordæmir aðgerðaleysi stjórnvalda gagnvart afkomuvanda heimila og neyðarástandi í heilbrigðiskerfi og á húsnæðismarkaði. Verði ekki brugðist við er ljóst að stefna mun í óefni við endurnýjun kjarasamninga eftir ár.  

Formannafundur Alþýðusambands Íslands krefst þess að stjórnvöld hverfi frá þeirri stefnu að hlífa auðmagni og völdum stórfyrirtækjum við eðlilegu framlagi til samfélagsins. Óbreytt forgangsröðun og sinnuleysi gagnvart afkomuvanda fólksins í landinu er ekki lengur valkostur.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí