Samtök atvinnulífsins sneru við blaðinu um helgina

Verkalýðsmál 20. feb 2023

„Þegar sáttasemjari óskaði eftir yfirliti hvors aðila um sig um lokastöðu viðræðna seinni part sunnudags þá dró forysta SA skyndilega upp óþekkjanlega mynd af afstöðu sinni þar sem áður umræddar málamiðlanir af þeirra hálfu höfðu gufað upp – rétt eins og markmiðið væri að ýkja hversu mikið bil væri milli aðilanna,“ segir Stefán Ólafsson prófessor og sérfræðingur Eflingar um viðræðuslitin.

Stefán rekur söguþráðinn í grein á Vísi. Hann segir að Samtök atvinnulífsins hafi líka sett sig upp á móti því að Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari legði fram miðlunartillögu byggða á þeim litla mun sem hafði verið milli samningsaðila á fimmtudag og föstudag. Í stað þess að semja eða fallast á sáttaleið hafi stjórn SA ákveðið að boða verkbann sem myndi lama atvinnulíf á höfuðborgarsvæðinu samstundis á þriðjudag í næstu viku.

„Erfitt er að sjá hverju slík framvinda ætti að skila öðru en að magna upp áhrif deilunnar, langt umfram þau áhrif sem verkföll afmarkaðra hópa geta haft, og skapa glundroða í samfélaginu,“ skrifar Stefán og segir að markmiðið sé líklega að þvinga stjórnvöld til að setja lög á deiluna. „Full ástæða er því til að efast um að SA-fólk hafi haft alvöru samningsvilja að þessu sinni. En Efling sýndi mikinn samningsvilja í verki – á marga vegu.“

En Stefán lýsir söguþræðinum svona: „Eftir að nýr sáttasemjari kom að kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA) hófust alvöru viðræður milli aðilanna í fyrsta sinn á miðvikudag í síðustu viku. Í góðri trú féllst samninganefnd Eflingar síðan á að fresta verkfallsaðgerðum á fimmtudagskvöld til miðnættis á sunnudag (19. feb.) til að greiða fyrir jákvæðum samningaviðræðum.

Einlægur samningsvilji og jákvæð leit að lausnum var leiðarljós Eflingarfólks í viðræðunum. Efling tók mörg skref til að nálgast SA. Viðræðurnar snérust um að aðlaga launatöflu Eflingar að sérstökum aðstæðum verkafólks á höfuðborgarsvæðinu og að gera það innan skekkjumarka kostnaðar SGS-samningsins.

Aðilar voru sammála um að SGS-samningurinn væri ódýrari fyrir fyrirtækin ef hann væri heimfærður óbreyttur á félagsmenn Eflingar á höfuðborgarsvæðinu. Efling ætti því inni einhverja umframhækkun svo félagsmenn Eflingar fengju álíka ábata af samningnum og verkafólk sem starfar undir SGS-samningnum, án þess þó að heildarkostnaður fyrirtækja yrði meiri. Ólík sjónarmið voru þó um aðferðir við mat á kostnaði og hversu mikið það svigrúm væri.

Í reynd gengu viðræðurnar vel á fimmtudag og föstudag og báðir aðilar voru lausnamiðaðir og þokuðust saman. Gerð höfðu verið drög að breyttri launatöflu til að koma til móts við ólíka samsetningu Eflingarfélaga samanborið við SGS-félögin á landsbyggðinni og að dreifa launahækkunum með öðrum hætti en gert var í SGS-samningnum.

Við lok föstudags mátti ætla að greið leið væri að því að brúa það bil sem þá var milli aðila hvað útfærslu launatöflu snerti. Samninganefnd Eflingar hafði lýst sig viljuga til að koma til móts við SA varðandi aðrar breytingar á kjarasamningi sem SA óskuðu eftir í skiptum.

Það kom samningafólki Eflingar því mjög á óvart á laugardeginum að gangur viðræðna þyngdist, þó áfram væri unnið með hugmyndir um ívilnandi breytingar á kjarasamningi til að vega á móti breytingum á launatöflu.

Á sunnudagsmorgun var síðan ljóst að SA-fólk hafði snúið við blaðinu og vildi ekki halda áfram á þeirri leið sem þó hafði skilað aðilunum á þann stað að frekar lítið bar í milli. Ekki hjálpaði til að SA gengu á bak loforðs um að viðræður myndu fara fram við fulltrúa Samskips og olíudreifingarfyrirtækja meðan á frestun verkfalls stæði.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí