Verkfallssjóður ekki notaður til að greiða niður pólitískt níðingsverk

Verkalýðsmál 22. feb 2023

„Stjórn vinnudeilusjóðs Eflingar mun hvorki auglýsa eftir né taka við umsóknum vegna tekjutaps félagsmanna sem hlotnast af fyrirhuguðu verkbanni atvinnurekanda. Atvinnurekendur bera alla ábyrgð á þeirri skömm að reka fólk launalaust heim. Vinnudeilusjóður Eflingar verður ekki nýttur til að niðurgreiða það pólitíska níðingsverk,“ segir í yfirlýsingu vinnudeildusjóðs Eflingar.

Í reglugerð sjóðsins segir að markmið hans sé að styrkja félagsmenn í verkföllum og verkbönnum þegar félagið á í vinnudeildum. Þetta er sambærilegt við reglugerðir verkfallssjóða annarra verkalýðsfélaga, að verkbanna sem verkfalla sé getið.

Samninganefnd Eflingar samþykkti í kvöld ályktun þar sem nefndin styður afstöðu stjórnar vinnudeilusjóðs Eflingar að ekki verði greitt úr sjóðnum vegna launataps sem orsakast af verkbanni atvinnurekenda. „Verkbann atvinnurekenda er á þeirra ábyrgð, ekki Eflingar. Atvinnurekendum ber að veita starfsfólki sínu skýringar á því hvers vegna þeir telja rétt og nauðsynlegt að reka þau heim launalaus úr vinnu, hyggist þeir gera það.“

Í ályktuninni segir að með verkbanni á 21 þúsund Eflingarfélaga hafi atvinnurekendur fært vinnudeiluna á nýtt og mun alvarlegra stig en afmarkaðar verkfallsaðgerðir Eflingarfélaga hafa nokkurn tíma gert. Ákvörðun um verkbann sé þvingunaraðgerð, langt fram úr öllu meðalhófi. Samtök atvinnulífsins beri alla ábyrgð á þeirri ákvörðun og afleiðingum hennar, ekki Efling.

„Verkbannið er í samræmi við þá ósæmilegu afstöðu sem SA hafa til kjaraviðræðna við Eflingu, sem er að virða ekki í reynd sjálfstæðan samningsrétt félagsins og ástunda ekki samningaviðræður í góðri trú. Þess í stað styðjast SA eingöngu við þvingunaraðgerðir, þar sem treyst er beint og óbeint á inngrip ríkisvaldsins og stofnana þess,“ segir í ályktuninni

Í tilkynningunniu kemur fram að Efling hafi fengið staðfest að margir atvinnurekendur hafi tilkynnt starfsfólki sínu um að þeir muni ekki framfylgja verkbanni. Jafnframt hafa SA gefið út að þau muni ekki stunda eftirlit til að þrýsta á um framfylgd verkbannsins. „Þetta staðfestir að ákvörðun um að reka starfsfólk sitt heim launalaust er á ábyrgð hvers og eins atvinnurekanda. Samninganefnd hvetur félagsfólk til að ganga á eftir atvinnurekendum sínum um skýr svör við því hvort verkbanni verði fylgt og hvaða réttlætingar atvinnurekandinn gefi upp fyrir því,“ segir í ályktuninni.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí