Sólveig Anna segir Friðjón miðaldra sjálfstæðisprins

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, vera miðaldra sjálfstæðisprins. Friðjón las upp tilvitnanir í Sólveigu í Silfrinu fyrr í dag. Sólveig skrifar á Facebook:

„Miðaldra Sjálfstæðisprins les ábúðarfullur í Silfrinu upp tilvitnaðir í mig. Hefur ekki orðið jafn leiður síðan á fyrri hluta síðustu aldar yfir orðfæri vondrar konu. En hann hefur ekkert að segja um níðingsskap Samtaka atvinnulífsins sem hafa greitt atkvæði um að reka 20.000 manneskjur launalausar heim í örvæntingu sinni yfir því að geta ekki gert kjarasamning.“

Sólveig heldur áfram og Þorhildi Sunnu Ævarsdóttur Pírata hafa verið skárri í Silfrinu. „Þórhildur Sunna aftur á móti mjög góð. Segir, ólíkt Sjálfstæðisprinsinum sem vill bara segja söguna af því sem að gerist inn í hans eigin bitra haus, söguna af því sem að raunverulega skiptir máli: þeim fráleitu og glæpsamlegu aðstæðum sem ríkja í efnahagslegum raunveruleika verka og láglaunafólks. Þeim aðstæðum sem að vinir og félagar hneykslaða Sjálfstæðisprinsins bera ábyrgð á. Þeim aðstæðum sem eru ástæðan fyrir því að Efling fer aftur og aftur í harða kjarabaráttu, ástæðan fyrir því að allar verkfallsboðanir félagsins síðan 2019 hafa verið samþykktar með yfirgnæfandi meirihluta, ástæðan fyrir því að félagsfólk Eflingar er tilbúið til að berjast með orðum og aðgerðum fyrir betri tilveruskilyrðum.“

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu. Skrá mig arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí