Segir Guðmund þjóna Bjarna en ekki okkur: „Hann er ekki embættismaður í þjónustu almennings“

Jóhann Hauksson, formaður Íslandsdeildar Transparency International, segir í pistli sem hann birtir á Facebook að Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi sé ekki embættismaður í þjónustu almennings heldur virðist hann þjóna Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra. Jóhann segir afstöðu hans í Lindarhvolsmálinu furðulega og sýna hverjum hann þjónar.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Jóhanns í heild sinni.

Ofstækisfull afstaða núverandi ríkisendurskoðanda, Guðmundar Björgvins Helgasonar, gegn rétti almennings til upplýsingar í Lindarhvolsmálinu er furðuleg. En hún upplýsir að hann er ekki embættismaður í þjónustu almennings heldur þjónar hann sínum herrum, sem réðu hann til verka sem ríkisendurskoðanda. Upphaflega var hann ráðinn til Guðna Ágústssonar þáverandi landbúnaðarráðherra árið 2000 og þjónaði honum í sjö ár. Nú er hann ríkisendurskoðandi og ráðinn af Alþingi Íslendinga en virðist þjóna Bjarna Benediktssyni og stjórnarliðum í Framsóknarflokknum, auðsveipur þeim sem sköffuðu honum fína vinnu.

Hvernig getur maður í embætti sem sérstaklega á að þjóna almennningi og skattgreiðendum og hafa á eftirlit með þvi að vel sé farið með almannafé gengið fram með slíkum hætti? Ég veit að stofnandi Sjálfstæðisflokksins, Jón Þorláksson sagði á prenti 1928 að engum væru veitt lyklavöld að ríkisféhirslum til að greiða úr þeim vinargjafir eða fylgdarlaun.

Þessi maður virðir regluna „æ sér gjöf til gjalda“ og greiðir nú fyrir sig með ofstopa gegn skattgsreiðendum í þágu Bjarna Ben og annarra stjórnarliða með því að hamast gegn því að Lindarhvolsskýrsla Sigurðar Þórðarsonar verði birt.

Þetta er fumstætt og spillt. Meira að segja vígi almennings sem eiga að verja skattgreiðendur gegn ofríki framkvæmdavaldsins eru „infiltreruð“ mönnuð einhverjum leiguliðum stjórnarherranna.

Svei þessu.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí