Þórarinn segir sveitarfélögin vilja átök og verkföll

„Búið er að vinna hörðum höndum að því að sveitarfélögin viðurkenni að þau greiði starfsfólki sínu sömu laun fyrir sömu vinnu eins og þeim er skylt samkvæmt lögum.“ Þetta sagði Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, á fundimeð félagsfólki á Seltjarnarnesi, Akranesi, í Höfða og stjórn Sameykis um stöðuna í kjaraviðræðum við sveitarfélögin. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birtist á vef Sameykis.

Þórarinn sagði jafnframt á fundinum að í upphafi kjaraviðræðna hefði verið trú samningarnefndanna að sveitarfélögin myndu sína mikinn samningsvilja að ganga frá kjarasamningum. Það hafi ekki staðist og þess í stað hafi nefndin lent á vegg.

Á vef Sameykis segir: „Upp kom ágreiningur sem snýst um gildistíma samningsins. BSRB félögin leggja mikla áherslu á að gildistíminn sé frá 1. janúar 2023 til að jafnræðis milli starfsmanna sveitarfélaganna sé gætt. Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga vill að BSRB hópurinn verði af 25% launabreytingum innan ársins sem samanburðarhópar fá í sinn vasa.“

Þórarinn Eyfjörð sagði ennfremur á fundinum: „Þegar svo launataflan er útfærð fá 1. janúar fær starfsfólk sveitarfélaganna innan Starfsgreinasambandsins tæp 10% launahækkun á meðan opinberir starfsmenn innan BSRB, sem vinnur við sömu störf, hlið við hlið, fá enga launahækkun eða standa í stað. Þetta er óþekkt staða sem er nú er uppi. Nú er tekist á um gildistímann um hækkun launa um þriggja mánaða tímabil frá 1. janúar – 31. mars 2023. Í viðræðum við sveitarfélögin kom fram að það verði ekki um það að ræða að hækkun komi til fyrir þetta tímabil.“

„Búið er að vinna hörðum höndum að því að sveitarfélögin viðurkenni að þau greiði starfsfólki sínu sömu laun fyrir sömu vinnu eins og þeim er skylt samkvæmt lögum. Í vinnu formannahóps BSRB og hjá félagsfólki hefur komið fram harður tónn vegna óbilgirni sveitarfélaganna og vilji er til að skipuleggja verkföll opinberra starfsmanna sem starfa hjá sveitarfélögunum,“ sagði Þórarinn Eyfjörð á fundinum.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí