Markús segir Willum hafa brotið siðareglur: „Ég hef orðið fyrir óviðunandi framkomu“

Markús Ingólfur Eiríksson, Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir að Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra hafi beitt sig óeðlilegum þrýstingi og að hann hafi orðið fyrir óviðunandi framkomu af hálfu ráðherra. Markús hefur óskað eftir því að Umboðsmaður Alþingis taki afstöðu til framgöngu ráðherra. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Markús birtir á vef HSS.

Markús segist hafa barist fyrir því að bæta þjónustu við íbúa Suðurnesja en fjárveitingar til heilbrigðisþjónustu á svæðinu hafa ekki tekið mið af fjölgun íbúa. Hann segir að hann ítrekað varað Willum Þór við ástándinu. Þrátt fyrir það hafi Willum ekkert brugðist við ástandinu.

Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsingu Markúsar Ingólfs í heild sinni.

Allt frá því að ég tók við sem forstjóri HSS, hef ég beitt mér fyrir því að bæta þjónustu við íbúa Suðurnesja og það hefur m.a. falist í því að berjast gegn því ranglæti sem íbúarnir hafa þurft að þola af hálfu stjórnvalda, sérstaklega hvað varðar það að fjárveitingar til heilbrigðisþjónustu á svæðinu hafa ekki tekið mið af fjölgun íbúa og þróunar rekstrarkostnaðar. Á HSS hafa stjórnendur verið í uppbyggingarstarfi sem hefur leitt til þess að traust til stofnunarinnar hefur aukist, eins og sjá má hér.

Á síðasta ári var ljóst að í óefni stefndi ef fjárveitingarnar yrðu ekki lagfærðar. Af því tilefni fengum við á HSS hið virta ráðgjafafyrirtæki Deloitte til að greina hvernig fjárframlög á hvern íbúa Suðurnesja hefðu þróast milli áranna 2008-22 með tilliti til þróun rekstrarkostnaðar. Þá var niðurstaðan samdráttur um 22% á hvern íbúa fyrir stofnunina í heild, þar af 45% á sjúkrasviði. Í ljósi þess að fólksfjölgun er einna mest á landinu á okkar þjónustusvæði vöruðum við heilbrigðisráðherra við því að ef ekki yrði brugðist við þessum vexti þá væri samfélaginu á Suðurnesjum stofnað í hættu.

Þrátt fyrir þessi varnaðarorð, fyrir ári síðan, brást heilbrigðisráðuneytið ekki við með fullnægjandi hætti. Því fór ég þess á leit við Deloitte að uppfæra skýrsluna frá því í fyrra með tölum þessa árs. Uppfærð skýrsla Deloitte staðfestir að fjárframlög á hvern íbúa hafa dregist enn meira saman eða um 27% fyrir stofnunina í heild og þar af 50% á sjúkrasviði. Staðan hefur því hríðversnað milli ára, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir af minni hálfu til að fá heilbrigðisráðuneytið og ráðherra til að leiðrétta það stóra gat sem aðgerðarleysi stjórnvalda um árabil hefur leitt af sér, gat sem núverandi ráðherra ber ekki einn ábyrgð á að myndaðist.

Ég ef sýnt staðfestu gagnvart ráðherra og ráðuneytinu sem hefur fram til þessa aðeins skilað aukafjárveitingum sem ekki hafa dugað til enda er grunnvandi stofnunarinnar enn óleystur. Eftir birtingu uppfærðu skýrslu Deloitte í síðustu viku, fékk ég formlegt bréf frá ráðuneytinu um að miðað við umfang starfsemi slysa- og bráðamóttöku HSS væri sú deild vanfjármögnuð og ráðuneytið hygðist beita sér fyrir að fjárveitingar til hennar yrðu hækkaðar um 300 m.kr. í fjárlögum næsta árs. Með þeirri ákvörðun ráðuneytisins felst ákveðin viðurkenning á að minn málflutningur sé samkvæmur sannleikanum. Hún dugar þó ekki til að leysa vandann nema að hluta.

Verulegur ágreiningur hefur verið milli mín og núverandi heilbrigðisráðherra varðandi skyldur stjórnvalda um fjármögnun á stjórnarskrárvarinni þjónustu við íbúa Suðurnesja. Ég hef því tekið ákvörðun um að óska eftir áliti Umboðsmanns Alþingis á þeim ágreiningsmálum enda hefur verulega skort á efnislegum svörum af hálfu ráðuneytisins við erindum mínum og niðurstöðum skýrslna Deloitte. Þá hef ég einnig ákveðið að óska eftir að Umboðsmaður Alþingis taki afstöðu til framgöngu ráðherra, með þátttöku ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðuneytisins, gagnvart mér þegar ég sinnti starfsskyldum mínum sem felast í að upplýsa um óþægilegar staðreyndir eða gagnrýna stjórnvöld. Sú framganga er að mínu mati hvorki í samræmi við góða stjórnsýslu né siðareglur ráðherra þar sem ég hef verið beittur óeðlilegum þrýstingi og orðið fyrir óviðunandi framkomu.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí