Miðstjórn ASÍ styður félagsfólk BSRB

Verkalýðsmál 7. jún 2023

Miðstjórn ASÍ lýsir yfir fullum stuðningi við yfirstandandi vinnustöðvun félagsfólks aðildarfélaga BSRB gagnvart sveitarfélögum landsins og beinir þeim tilmælum til félagsfólks aðildarsamtaka sinna að ganga hvorki beint né óbeint í störf félagsfólks aðildarfélaga BSRB meðan á vinnustöðvun stendur.

Í yfrilýsingu miðstjórnar segir að meginreglan um að jöfn laun skuli greiða fyrir sambærileg störf sé mikilvæg á íslenskum vinnumarkaði og þau stéttarfélög og einstaklingar sem telja á sig hallað eru hvattir áfram til að knýja fram leiðréttingu. Jafnframt er höfðað til ábyrgðar atvinnurekenda, og þá sérstaklega opinberra, að axla ábyrgð á sanngjörnum vinnumarkaði og mismuna ekki fólki á grundvelli stéttarfélagsaðildar.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí