Segir sveitarfélögin kasta siðferðinu á bálið

Verkalýðsmál 9. jún 2023

„Það er vel hægt að leysa þann hnút sem kjaradeila BSRB og bæjar- og sveitarfélaga er í.,“ segir Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og fyrsti varaformaður BSRB. „Hnúturinn er í raun auðleysanlegur og liggur í svarinu við hvort siðferðið sé á réttum stað. Það liggur auðvitað ljóst fyrir að starfsfólk bæjar- og sveitarfélaga getur ekki sætt sig við lægri laun fyrir sömu störf og vinnufélagar þeirra gegna. Krafa BSRB er í alla staði réttmæt, sanngjörn og siðleg. Kallað er eftir að þeir aðilar sem sannarlega eru í þeirri stöðu að geta látið gott af sér leiða, setji nú upp jafnréttisgleraugun og hafi velferð allra starfsmanna sinna að leiðarljósi.“

„Félagsfólk í aðildarfélögum BSRB og starfsfólk sveitarfélaganna utan Reykjavíkur er nú í verkfalli um land allt og krefst sömu launa fyrir sömu störf – eðlilega,“ byrjar Þórarinn grein sína á vef Sameykis. „Enda er ekki nema sjálfsagt að starfsfélagar sem vinna sömu störf, oft hlið við hlið á sama vinnustaðnum, fái jafn mikið greitt fyrir sína vinnu. Það væri efni í margar greinar ef rekja ætti allar lagasetningarnar, samþykktir jafnréttisþinga ráðherra, átaksverkefnin og stefnumið stjórnmálaflokka sem fjalla um þá afdráttarlausu jafnréttiskröfu sem gerð er þegar kemur að réttindum á vinnumarkaði. Maður skyldi spyrja sig hvers vegna svo er komið, að Samband íslenskra sveitarfélaga vilji mismuna starfsfólki bæjar- og sveitarfélaga í launum? Af hverju horfast bæjar- og sveitarfélög ekki í augu við að það er ekki einungis óréttlátt og beinlínis heimskulegt að beita sér gegn sínu eigin starfsfólki með þessum hætti, heldur er það einnig siðferðilega rangt?“

„Nei, þú færð ekki laun til jafns við aðra“

„Gott siðferði gagnvart starfsfólki sínu felst í að tryggja jafnrétti í launum og að ekki séu teknar ákvarðanir sem framkalla ójafnrétti og mismunun í launum eins og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur gert gagnvart opinberum starfsmönnum sem halda uppi almannaþjónustunni hjá sveitarfélögunum,“ skridae Þórarinn.

„Óbilgirni er gott orð sem nær yfir þessa nauðhyggju. Það er vel hægt að breyta nútíðinni með því að leiðrétta mistök fortíðar. Í samfélagi manna hefur það oft verið talið styrkleikamerki að geta leiðrétt mistök, bætt fyrir misgjörðir sínar eða heimskulegar ákvarðanir – og finnast það sjálfsagt. Bæta fyrir það sem aflaga hefur farið með heiðarleika og velferð starfsfólksins að leiðarljósi. Það er hvorki umburðarlyndi né umhyggja sem fylgir þeim viðhorfum að mismuna fólki á lægstu laununum sem starfar í grunnþjónustu sveitarfélaganna, í þessu tilfelli utan Reykjavíkurborgar. Það er engin skynsemi í að segja blákalt við starfsfólk sitt: „Nei, þú færð ekki laun til jafns við aðra. Nú skalt þú vera á lægri launum og okkur dettur ekki í hug að leiðrétta það.“ Slíkum viðhorfum fylgir ekki hár siðferðisþröskuldur, hvað þá aðrar dyggðir eins og sanngirni, umhyggja og heiðarleiki.“

Starfsmatið urðað

„Önnur hlið á þeirri kjaradeilu sem nú er uppi snýst um launamyndunarkerfið sem aðilar hafa samið um og á alltaf að tryggja jafnræði í launum fyrir sömu störf,“ segir Þórarinn. „Þetta kerfi kallast Starfsmat og um það var á sínum tíma gert sérstakt samkomulag. Sveitarfélögin voru jafnframt fyrstu atvinnurekendur landsins til að taka upp þetta samræmda starfsmatskerfi sem hafði það að markmiði að framfylgja jafnlaunaákvæðum laga og tryggja starfsfólki sömu laun fyrir sömu eða jafn krefjandi störf óháð kyni, vinnustað eða stéttarfélagi. Nú hafa sveitarfélögin í einu vetfangi eyðilagt þann sanngirnisgrunn sem kerfið byggir á og er það í sjálfu sér merkileg aðgerð. Í ljósi þess að bæjar- og sveitarfélögin hafa urðað Starfsmatið á ruslahaug tapaðra vitsmuna, þá er tímabært fyrir stéttarfélögin í landinu (væntanlega hvert fyrir sig) að hefja undirbúning næstu kjarasamninga sem eiga að vera komnir á gott skrið eftir 2–3 mánuði.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí