Segir Bjarni fara með bábiljur um að verðmæti verði aðeins til í einkafyrirtækjum

Verkalýðsmál 29. ágú 2023

„BHM hvetur stjórnvöld til að leita tækifæra til ráðdeildar í ríkisrekstri með nýrri nálgun og skapa aukna hvata fyrir starfsfólk til að taka þátt í verkefninu,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM. „Nú kann að vera rétti tíminn til að brjótast út úr þrálátri síló-hugsun stjórnkerfisins og innleiða þverfaglegri vinnubrögð. Við hefðum líka gagn af því að hinu mikilvæga hlutverki sem ríkisstofnanir sinna í samfélaginu og kveða um leið niður þá bábilju að verðmætasköpun eigi sér einungis stað fyrir tilstuðlan einkaframtaksins. Ef stjórnvöld taka hlutverk sitt nýjum tökum kann niðurstaða aðgerða að færa okkur nær háleitum markmiðum um velsældarhagkerfi.“

Kolbrún skrifar grein til að andmæla hugmyndum Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um flatan niðurskurð opinberra starfsmanna. „Í atvinnulífinu er alla daga leitað leiða til að gera meira með minni tilkostnaði. Það er eðlilegt að hið sama eigi við í opinbera rekstrinum,“ sagði Bjarni á kynningarfundi degi fyrir flokksráðsfund Sjálfstæðisflokksins um helgina, fund sem augljóslega var ætlað að svara gagnrýni innan úr hans flokki. Bjarni sagði að gert væri ráð fyrir að „hægt verði á útgjöldum ríkisins“ um 17 milljarða króna á árinu 2024, þar af verði dregið úr útgjöldum vegna launa um 5 milljarða króna. Þessu vill Kolbrún svara.

„Það er í sjálfu sér ekki ástæða til að setja sig upp á móti því að hagrætt sé í ríkisrekstri enda frumskylda stjórnvalda að fara vel með skattfé,“ skrifar Kolbrún. „Það er hins vegar eðlilegt að við sem erum í forsvari fyrir heildarsamtök stéttarfélaga stöldrum við þegar ráðherra talar berum orðum um fyrirhugaðar uppsagnir. Við gerum kröfu um að svo umfangsmikil hagræðing sem nú er boðuð sé studd málefnalegum rökum og framkvæmd með faglegum hætti. Slíkt verður best gert ef vandað hagsmunamat liggur til grundvallar, það mat verði framkvæmt með breiðri aðkomu kunnáttufólks og fari ekki gegn mikilvægustu gildum þess samfélags sem við höfum komið okkur saman um að byggja. Fækkun starfsfólks má ekki heldur verða til þess að draga úr gæðum þeirrar samfélagsþjónustu sem hið opinbera veitir eða til þess að stórauka álag á það starfsfólk sem eftir verður.“

„Sú skoðun þekkist hjá tilteknum hópi í samfélaginu að starfsmannahald hins opinbera sé myllusteinn um háls skattgreiðenda,“ skrifar Kolbrún og ávarpar Sjálfstæðisflokk, Miðflokk og Viðreisn. „Því fer fjarri; átta af hverjum tíu krónum í rekstri ríkisins er varið í liði utan launakostnaðar samkvæmt uppgjöri Hagstofunnar. Í þeim hluta ríkisrekstrar liggja vissulega tækifræi til sparnaðar og ein skilvirkasta aðferðin við að finna þau tækifæri er að leita hugmynda hjá þeim sem best þekkja til. Starfsfólkið sjálft er oft best til þess fallið að benda á sparnaðar- og hagræðingartækifærin í eigin nærumhverfi. Reynsla af slíkum vinnubrögðum hefur enda gefið góða raun hjá ýmsum opinberum stofnunum og ráðuneytum. Það er t.d. í fullu samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun að nýta hvern húsnæðisfermetra til fullnustu og áhugaverð sú mynd sem fjármálaráðherra dró upp í kynningu sinni varðandi þann þátt. Eins eru trúverðug þau áform sem lúta að lækkun ferðakostnaðar hins opinbera og áform um hagkvæmari innkaup, svo fremi að slíkt feli í sér minni sóun og að umhverfisvænustu kostirnir verði ávallt fyrir valinu í innkaupum á vöru og þjónustu.“

„Mér kemur í hug saga sem kunningi minn sagði mér nýlega af starfsmanni sem starfaði í eldhúsi á hérlendri heilbrigðisstofnun,“ heldur Kolbrún áfram. „Maðurinn, sem flutti hingað frá einu af fátækari ríkjum Austur-Evrópu, var vanur að nýta vel allt hráefni til matargerðar og kom strax auga á ýmislegt í starfsumhverfi sínu sem færa mætti til betri vegar. Honum datt t.d. í hug að það mætti efna til hugmyndasamkeppni meðal starfsfólks um bætta matarnýtingu, án þess að gengið yrði á gæði eða næringargildi. Honum kom í hug sú framúrstefnulega hugmynd að þær upphæðir sem þannig spöruðust mætti greiða starfsfólki að hluta í formi bónusa. En hann lagði ekki í að hreyfa hugmyndinni við nokkurn mann. Hann taldi kerfið sem unnið var eftir í of föstum skorðum og að menningin á vinnustaðnum gerði ekki ráð fyrir aðkomu starfsfólks í ákvörðunum. Það fór því svo að hann hvarf fljótlega til annarra starfa.“

Lesa má grein Kolbrúnar hér: Fagleg nálgun í stað flausturs

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí