Davíð krefst þess að Páll Gunnar verði rekinn

„Hins veg­ar blas­ir við að Páll Gunn­ar Páls­son for­stjóri Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins hef­ur í þess­um efn­um ekki aðeins mis­beitt valdi sínu, held­ur hef­ur hann og yf­ir­stjórn SKE hvað eft­ir annað farið með rangt mál gegn betri vit­und. Af­vega­leitt al­menn­ing. Á því leik­ur ekki minnsti vafi leng­ur og það kall­ar á taf­ar­lausa lausn,“ skrifar Davíð Oddsson í Moggaleiðara dagsins. Þar heldur hann áfram að enduróma kröfur stórauðvaldsins um að Páll Gunnar verði rekinn og samkeppniseftirlit minnkað.

Morgunblaðið, undir stjórn Davíðs, hefur fjallað lítið sem ekkert um samsæri skipafélaganna gegn almenningi sem Samkeppniseftirlitið afhjúpaði og eigendur Eimskips viðurkenndu. Sama má reyndar segja um aðra meginstraumsmiðla. Lítið hefur verið fjallað um málið sem afhjúpaði hvernig fákeppnisfyrirtæki hegða sér á svokölluðum markaði, sem er í tilfelli fákeppnisfyrirtækjanna aðeins vettvangur fyrir beint eða óorðað samráð um að okra og svindla á fólki og fyrirtækjum. En þegar kemur að niðurstöðu úrskurðarnefndar samkeppnismála, sem leidd var af fyrrum starfsmanni útgerðarinnar, þar sem fallist var á allar umkvartanir Guðmundar Kristjánssonar í Brim um rannsókn Samkeppnisyfirlitsins á eignarhaldi í sjávarútvegi, þá ræður Morgunblaðið sér ekki yfir hneykslan, aldrei upplifað annað eins óréttlæti. Blaðið hefur ekki aðeins skrifað margar fréttir á vef sinn og í blaðið heldur fjölda ritstjórnargreina. Það að yfirvöld vilji fá fram raunverulegt eignarhald stórútgerðarinnar, sem sölsað hefur undir sig stærstan hluta af sjávarauðlindinni, gengur fram af Davíð, Mogganum og eigendum hans.

Á laugardaginn líkti Davíð, sem ritstýrir Mogganum í umboði stórútgerðarinnar, þessari rannsókn Samkeppniseftirlitsins og vilja matvælaráðherra til að draga eignarhald þeirra fyrirtækja fram, sem nýta auðlindir almennings, við Stasi, austur-þýsku leyniþjónustuna.

„Ef til vill er það þó afstaða mat­vælaráðherra til rík­is­valds­ins og hins frjálsa þjóðskipu­lags sem mest­ar áhyggj­ur vek­ur. Í gær áréttuðu Sam­tök at­vinnu­lífs­ins mik­il­vægi meðal­hófs í upp­lýs­inga- og gagna­öfl­un hins op­in­bera, en þegar mbl.is innti Svandísi álits á því stóð ekki á svör­um: „Ég held að það sé mik­il­vægt að at­vinnu­starf­semi í land­inu sé þannig að hún hafi ekk­ert að fela.““ skrifaði Davíð. Og bætti við: „Stasi hefði ekki getað orðað það bet­ur.“

Morgunblaðið hefur engin áhrif út í samfélaginu lengur, en ritstjórnargreinar þess endurspegla hvernig rætt er um samfélagið í bakherbergjum Valhallar, höfuðstöðum Sjálfstæðisflokksins, lykilflokks ríkisstjórnarinnar. Í þessum skrifum kemur fram botnlaus fyrirlitning á almannavaldinu og rétt þess til að fylgjast með og veita auðvaldinu aðhald. Og jafnframt algjört sinnuleysi gagnvart brotum auðvaldsins gegn almenningi. Það er lína Moggans að það beri að verja stór-auðvaldið gagnvart almannavaldinu en alls ekki almenning gagnvart stór-auðvaldinu.

Þetta er auðvitað lína hægrisins víða um heim, en vanalega reynir áhrifafólk innan hægrisins að fela þessar ráðagerðir, þykist ætla að verja almenning þótt það sé ekki ætlunin. Það má hins vegar þakka ást Davíðs á eigin penna að hann getur ekki leynt raunverulegum fyrirætlunum. Davíð ætlar kannski að fela þessar ráðagerðir í upphafi ritstjórnargreina en missir sig svo um miðbikið og afhjúpar síðan frekjuna og grimmdina í lokin. Þar birtist vanalega krafa um algjört alræði auðvaldsins og að það fólk sem ekki beygir sig undir það verði látið hverfa. Kannski ekki bókstaflega, en úr starfi sínu. Sagan segir reyndar að þau sem auðvaldið hefur ráðist gegn með þessum hætti geta ekki brauðfætt sig á Íslandi og flýr land. Svo það eru engar ýkjur að segja að markmiðið sé að láta það hverfa úr íslensku samfélagi.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí