Skora á Blikamenn að afþakka komu Ísraels – Stigalausir og ekkert í húfi nema mannréttindi         

Félagið Ísland-Palestína hvetur stjórn Breiðabliks til að slá af væntanlegan leik gegn ísraelska liðinu Maccabi Tel Aviv í opnu bréfi. Stefnt er að því að leikurinn fari fram þann 30. nóvember á Íslandi en hann er sá síðasti í B-riðli Sambandsdeildar Evrópu. Breiðablik hefur tapað öllum öðrum leikjum í riðlinum. Því hafa Blikamenn í raun engu að tapa. En að sögn Hjálmtý Heiðdals, formanns FÍP og ritara bréfsins, þá geta þeir lokið riðlinum með reisn og afþakkað komu Ísraelsmanna

Hér fyrir neðan má lesa bréfið í heild sinni hér fyrir neðan.

Til stjórnar Breiðabliks

Þann 30. nóvember n.k. á knattspyrnulið Breiðabliks að leika gegn ísraelska liðinu Maccabi Tel Aviv. Af því tilefni sendum við ykkur þetta bréf og áskorun um að hætta við fyrirhugaðan leik gegn Maccabi Tel Aviv.

Heimurinn hefur að undanförnu horft með hryllingi á árásir Ísraelshers gegn íbúum Gazastrandarinnar. Engu er eirt, yfir ellefuþúsund Gazabúar drepnir í stórfelldum loftárásum og árásum skriðdrekasveita og stórskotaliðs sem skjóta á allt kvikt á einu þéttbýlasta svæði jarðarinnar.

Þessi grimmilega hrina morða er réttlætt með því að það verði að „drepa alla Hamasliða“ eins og forsætisráðherra Ísraels sagði í upphafi innrásarinnar. En aðeins lítill hluti þeirra föllnu eru liðsmenn Hamas.

Fórnarlömbin eru fyrst og fremst börn og mæður. Nær helmingur Gazabúa eru börn að aldri og stöðugar loftárásir og fallbyssuskothríð hefur leitt til dauða um sexþúsund barna auk þess eru á annað þúsund börn föst undir rústum heimila sinna og vonlítið að þau séu á lífi eftir marga daga án vatns og næringar.

Hvaða afstöðu sem menn hafa gagnvart Hamas og aðgerðum þeirra þá getur engin manneskja með réttlætiskennd fallist á framferði Ísraelsstjórnar og hersins sem hún hefur sent á vettvang. Hrannmorð á börnum og almennum borgurum er stríðsglæpur sem aldrei má líða.

Vestræn stjórnvöld hafa, þrátt fyrir margítrekuð brot Ísraels á alþjóðasáttmálum og Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna, slegið skjaldborg um framferði Ísraels með yfirlýsingum um að „Ísrael hefur rétt til að verja sig“.

Þá hlýtur sú spurning að vakna – hvað er það sem Ísrael er að verja?

Er það landránið á Vesturbakkanum? Er það bygging ólöglega aðskilnaðarmúrsins? Er það hið áratuga langa hernám og eyðilegging heimila Palestínumanna með stórvirkum jarðýtum, eða eru það morðin á tugþúsundum Palestínumanna sem hernámsliðið hefur drepið?

Ísrael er í raun að verja allt þetta og einnig apartheidstefnuna, rasismann og nýlendustefnuna sem þeir framfylgja af æ meira krafti á Vesturbakkanum og hyggjast nú hertaka Gaza að fullu.

Þegar stjórnvöld Vesturlanda bregðast ekki við brotum á alþjóðalögum með refsiaðgerðum líkt og gert er gagnvart Rússlandi núna og var gert á sínum tíma gagnvart stjórn aðskilnaðarstefnu grundvölluð á rasisma í S – Afríku, þá verður almenningur að taka til sinna ráða.

Með því að þrýsta á stjórnvöld getur almenningur mögulega náð fram stefnubreytingu.

En sterkasta vopnið í höndum almennings er víðtæk sniðganga á sviði menningarsamskipta, á sviði íþróttasamskipta og á sviði viðskipta. Sniðganga sem varir svo lengi sem ísraelsk stjórnvöld halda áfram að brjóta alþjóðasáttmála og mannréttindasáttmála sem kveða skýrt á að Palestínumönnum beri full mannréttindi og frelsi undan kúgun.

Allir þeir leikmenn sem hingað koma á vegum Maccabi Tel Aviv eru á þeim aldri að þeir eru annaðhvort hermenn í her Ísraels eða í varaliði hersins.

Við skorum á Breiðablik að hætta við fyrirhugaðan knattspyrnuleik gegn Maccabi Tel Aviv og senda með því skýr skilboð að íslenskt íþróttafólk styður mannréttindi.

F.h. Félagsins Ísland – Palestína

Hjálmtýr Heiðdal

Formaður FÍP

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí