Ísraelsher gerir sprengjuárásir á íbúðahverfi – Konur og börn meðal látinna
Að minnsta kosti 20 Palestínumenn eru látnir og fjölmargir særðir eftir sprengjuárásir Ísraelshers á íbúðahverfi í annars vegar Rafahborg og hins vegar í Jabalia. Meðal látinna eru bæði konur og börn.
Ísraelski flugherinn varpaði í morgun sprengjum á tvö hús og fjölbýli í Rafahborg á suðurhluta Gaza-strandarinnar. Að minnsta kosti fjórtán eru látnir og mun fleiri særðir að því er Wafa fréttastofan greinir frá. Börn og konur voru meðal látinna eftir árásina. Myndefni sýnir særða og látna flutta á Kuwaiti sjúkrahúsið í borginni.
Í Jabalia gerði Ísraelsher stórskotaliðsárás á íbúðarhús seint í gærkvöldi. Að minnsta kosti átta Palestínumenn létust í árásinni og þar á meðal börn. Fjölmargir eru særðir.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward