Bankasýsla ríkisins vill selja TM eins og drasl á bland.is

Svo virðist sem Bankasýsla ríkisins hafi engan sérstakan áhuga á því að fá sem best verð fyrir fyrirtækið TM, sem Landsbankinn keypti nýverið. Bankasýsla ríkisins ákvað á fundi í fyrradag að skipta öllu bankaráði Landsbankans út og selja fyrirtækið aftur. Í stað þess að reyna að draga sem mest úr meintum skaða og selja fyrirtækið jafnvel ekki með of miklu tapi, þá verður fyrirtækið sett á brunaútsölu.

Í það minnsta er það í grófum dráttum það sem Bankasýslan leggur til í bréfi til í bréfi til Sigurðar Inga Jóhannssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Þar lýsir Bankasýslan hugmyndum sínum um fyrirhugaða sölu á TM. Sú lýsing minnir helst á auglýsingu á Bland.is, á hlut sem þarf að fara í hvelli, kannski vegna flutninga.

Efnislega segir Bankasýslan að fyrirtækið „þurfi að fara strax, öll tilboð skoðuð“, líkt og í svo mörgum auglýsingum. Oft enda slíkar auglýsingar á því að hluturinn fæst gefins ef einhver sækir hann. Er hér þó um að ræða fyrirtæki sem bankinn keypti fyrir örfáum vikum fyrir litlar  28,6 milljarða króna. Nú stuttu síðar eru allar leiðir skoðaðar til að losna við það. Í bréfinu, sem Tryggvi Pálsson formaður, undirritar, segir:

„Bankasýsla ríkisins telur að bankaráð Landsbankans gæti t. d. litið til sölu á TM til þriðja aðila, frumútboðs á hlutum í félaginu, útgreiðslu hluta til eigenda eða endurskipulagningar starfsþátta innan samsteypu bankans og TM.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí