Einungis Katrín Jakobsdóttir segist mótfallin því að allir frambjóðendur í forsetakosningunum fái að taka þátt í kappræðum RÚV á morgun. Annar forsetaframbjóðandi, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, greinir frá þessu en hún hefur, ásamt öðrum, bent á hve ólýðræðislegt núverandi fyrirkomulag kappræðanna sé. Til stendur að leyfa einungis þeim sem mælast ákveðið hátt í skoðanakönnunum, sem reynslan hefur sýnt að sé oft kolrangar, að taka þátt.
Steinunn telur að með þessu þá sé Katrín í raun að sýna sinn innri mann. Hún segir þetta þrátt fyrir allt mikil vonbrigði. „Vonbrigði dagsins. Í gær sendu ellefu frambjóðendur kröfu á hendur RÚV um að sama fyrirkomulag verði á síðari kappræðum RÚV svo þjóðin geti á lýðræðislegan hátt fyrirhitt alla frambjóðendur á sömu stundu. Nú hefur fyrrum forsætisráðherra tekið afstöðu til málsins,“ segir Steinunn og heldur áfram:
„Í svari hennar segir, að hún hafi verið ánægð með fyrirkomulag fyrri kappræðna en að hún treysti RÚV fyrir ákvarðanatöku hvað þetta mál varðar. Hvað birtist okkur hér? Er þetta ekki birtingarmynd þess sem koma skal? Ég lít svo á að hér sjáum við svart á hvítu það sem ég óttast að fyrrum forsætisráðherra verði aldrei ein af okkur. Og að hún muni alltaf taka sér stöðu með valdinu þrátt fyrir óskir fólksins. Við meðframbjóðendur hennar sem erum ellefu talsins komum úr öllum kimum samfélagsins og erum því þverskurður af almenningi í landinu. Lifi lýðræðið!“