Seðlabankinn heldur vöxtum í hæstu hæðum

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25%.

Verðbólga hefur áfram hjaðnað og mældist 6% í apríl. Verðbólga án húsnæðisliðar hefur minnkað hraðar og undirliggjandi verðbólga er komin í 5%. Verðbólguvæntingar hafa lækkað á suma mælikvarða en eru enn yfir markmiði,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Og áfram: „Hægt hefur á vexti innlendrar eftirspurnar enda er peningalegt taumhald þétt og horfur eru á að það dragi úr hagvexti í ár. Spenna í þjóðarbúskapnum er þó meiri en áður var talið og verðbólga minnkar því hægar samkvæmt nýrri spá Seðlabankans.

Áhrif nýgerðra kjarasamninga og aðgerða í ríkisfjármálum á eftirspurn eru ekki að fullu komin fram. Þótt hægt hafi á vinnumarkaði er spenna enn til staðar sem gæti ýtt undir launaskrið með tilheyrandi áhrifum á verðbólgu.

Peningastefnunefnd telur auknar líkur á því að núverandi aðhaldsstig sé hæfilegt til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“

Vextir eru því enn háir á Íslandi, miklu hærri en annars staðar. Raunvextir stýrivaxta, það er vextir að frádregni verðbólgu, er um 3%. Og raunvextir íbúðalána um 5% og raunvextir yfirdráttarlána yfir 10%. Það flæðir því fé frá þeim sem skulda til þeirra sem eiga í stríðari straumum á Íslandi en á nokkru öðru byggðu bóli.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí