Borgarstjórnarflokkur Sósíalistaflokksins leggur fram eftirfarandi tillögu í borgarstjórn þriðjudaginn 21. janúar 2025. Hægt er að fylgjast með fundinum rafrænt hér: https://reykjavik.is/borgarstjorn-i-beinni
eða mæta á pallana í Ráðhúsinu og fylgjast með. Borgarstjórnarfundurinn hefst kl. 12:00.
Tillaga um að kalla eftir ábendingum borgarbúa varðandi þjónustu borgarinnar
Lagt er til að ábendingavefur borgarinnar verði auglýstur með það að markmiði að leitast við að fá inn ábendingar íbúa um það sem megi bæta í þjónustu borgarinnar. Eða ef það er eitthvað sérstaklega jákvætt sem mætti auka. Markmiðið verði að senda út skilaboð um að borgarstjórn vilji heyra frá borgarbúum og auglýsa vel hvernig megi koma skilaboðum áleiðis. Síðan verði unnið skipulega úr þeim athugasemdum sem berast svo að borgarfulltrúar geti kynnt sér þær. Á sama tíma verði auglýst vel hvernig megi koma ábendingum áleiðis bréfleiðis ef viðkomandi kýs slíkt fram yfir rafrænar lausnir. Lagt er til að um verði að ræða sérstakt átak sem standi fyrst um sinn yfir í mánuð, t.a.m. að auglýst verði vel fyrir febrúarmánuð að verkefnið sé að fara í gang og ábendingum safnað saman þegar mánuðurinn hefur runnið sitt skeið. Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu og þjónustu- og nýsköpunarsviði verði falið að halda utan um verkefnið og meta hvernig best sé að auglýsa það. Auglýsingar um verkefnið og notendaviðmótið verði á nokkrum tungumálum. Ábyrgðarsviðum verði falið að meta hvort nýta eigi núverandi ábendingavef borgarinnar eða hvort þörf sé á öðru kerfi til að taka á móti ábendingum.
Tillaga um að kalla eftir ábendingum borgarbúa varðandi þjónustu borgarinnar
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.