https://samstodin.is/wp-admin/post.php?post=20630&action=edit
Í líflegri samræðu við Rauða borðið 8. maí um nýja og mjög sláandi heimildarmynd um námugröft í Grænlandi og endurskoðun á bókhaldi kemur í ljós að myndin birtir allt annars konar tengsl nýlenduherra við nýlendu sína og gerir Grænlendingum kleift að syrgja og auðsýna reiði og ítrekar nauðsyn þess að ræða um sambandið við nýlenduherrana á gagnrýninn og nýjan hátt.
En myndin hefur verið tekið úr sýningu og spurning hvort hún verði sýnd á RÚV. Svo sannarlega þarf að ræða efni hennar eins og samræðan við Rauða borðið leiddi í ljós en þar voru Sólveig Ásta Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur, ný-doktor á hugvísindasviði HÍ, Már Wolfgang Mixa, fjármálafræðingur, dósent í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Bryndís Björnsdóttir, myndlistarkona og doktorsnemi í mannfræði og Linda Lyberth Kristiansen, frá Grænlandi, sérfræðingur i málefnum árþjóða hjá Arctic Circle, að ræða um nýlenduhyggju, sorg, skömm, söguskekkjur, endurskoðun nýlendubókhalds, áróður og ástand á norðurslóðum.