Færri ráðherrar til bjargar mannslífum

„Eftir kosningarnar 2021 var þáverandi ríkisstjórn með það efst á forgangslistanum að fjölga ráðherrastólum að óþörfu og með tilheyrandi kostnaði. Það hefði ekki átt að koma neinum á óvart þegar þessi ríkisstjórn tók við að hennar fyrsta verk var að fækka ráðuneytum aftur og spara með því 350 millj. kr. á ári. Auðvitað er þetta ekki há upphæð í stóra samhenginu en allt skiptir þetta máli,“ sagði Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar.

„Þegar við förum betur með almannafé skapast traust svigrúm til að styrkja kerfin þar sem þörfin er brýnust. Við getum t.d. lagt málin þannig upp að með þessari einföldu aðgerð hafi ný ríkisstjórn tryggt að bráðnauðsynleg meðferðarúrræði verði opin í sumar, ólíkt því sem verið hefur undanfarin ár. Með þessum sparnaði hefur ný ríkisstjórn tryggt sumaropnun meðferðarúrræða, úrræða sem áður lokuðu yfir sumarið með hörmulegum afleiðingum. Minnumst síðasta sumars. Fólk leitaði sér hjálpar og fékk þau svör að hringja aftur eftir frí. Fjölskyldur sátu eftir í óvissu og það urðu dauðsföll vegna þessa. Slík lokun heilbrigðisþjónustu sendir röng skilaboð og þau viljum við ekki senda. Fjárheimildir verða auknar til SÁÁ, Krísuvíkur, Hlaðgerðarkots, Landspítalans og annarra úrræða. Biðlistar styttast og þjónusta verður samfelld fyrir þá sem þurfa,“ sagði Sigmar.

Hann hélt áfram: „Þetta er skynsamleg nýting fjármuna, að færa fé frá efsta lagi stjórnkerfisins yfir í úrræði sem bjarga mannslífum. Þannig sýnum við að orð og verk haldast í hendur, að hægt sé að treysta því sem við segjum. En við erum rétt að byrja. Næstu skref verða að styrkja forvarnir, efla eftirfylgni og tryggja að fólk falli ekki á milli kerfa. Fjárfesting í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismálum er ekki útgjaldavandi heldur arðbær ákvörðun um mannauð þjóðarinnar. Þegar fólk horfir til okkar stjórnmálamanna þarf það að fá á tilfinninguna að dyrnar að nauðsynlegri þjónustu standi opnar, líka í júlí. Það er forgangsröðun sem Viðreisn stendur fyrir. Við erum ekkert að lofa öllu en því sem við lofum, það stöndum við við.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí