„Það er allt of dýrt að kaupa í matinn hérna.“
Þetta sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í svari við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins á Alþingi í dag og gaf í skyn að hraða yrði endurnýjun búvörulaga.
„Við erum líka að velta fyrir okkur hvort Samkeppniseftirlitið ætti að vera betur fjármagnað,“ sagði Kristrún og boðaði aukið aðhald gegn fákeppni og ólögmætu samráði. Undir stjórn hægri manna hafa samkeppnisyfirvöld hér á landi nánast kerfisbundið verið vængstífð síðustu misseri með þverrandi fjárveitingum, sem kann að koma illa niður á neytendum þegar þeir verzla í matinn.
Sigurður Ingi lýsti áhyggjum af efnahagshorfum og sagðist efast um plan ríkisstjórnarinnar.
Kristrún sagði að fjölmargt væri í gangi til aukinnar verðmætasköpunar. Tekjustofnar svo sem aukin veiðigjöld myndu gagnast vel til að bæta samgöngur. Vel heppnuð sala á Íslandsbanka sé til marks um traust og trú landsmanna.