„Þetta er aumkunarvert uppátæki“

„Þessa menn er ekki hægt að taka alvarlega, en það sem þeir hafa gert er alvarlegt.

Að saka utanríkisráðherra um að svíkja þjóð sína er birtingarmynd pólitískra öfga.

Fyrir utan hversu ómerkileg þessi árás er gagnvart embættinu, þá er hún móðgun við allar þær þjóðir sem upplifað hafa afdrifarík svik eigin borgara í þágu óvina,“ skrifar Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fyrrverandi utanríkisráðherra.

„Hin raunverulega árás á lýðveldið okkar felst í þessari sneypuför sem farin er annað hvort af brjóstumkennanlegum óvitaskap eða fáheyrðri illgirni.

Annað er málefnaleg og hreinskilin umræða um alþjóðamál, Evrópusambandið og Bókun 35. Ræðum stöðu okkar og áskoranir af hreinskilni, en sökum ekki ráðherra um landráð. Það hefur afleiðingar alþjóðlega.

Þetta er aumkunarvert uppátæki.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí