Nú eru tæp 17 ár liðin frá því að síðan hópur aktivista hljóp út á flugbrautina í Keflavík til að stöðva brottvísun flóttamannsins Paul Ramses árið 2008. Það var neistinn sem kom No Borders-hreyfingunni af stað á Íslandi og af þeirri ástæðu verður efnt til hátíðar í Iðnó í kvöld, föstudag.
Mörg stærstu nöfn í íslenska tónlistarheiminum á svið í Iðnó á Hátíð gegn landamærum. Þar á meðal eru poppgoðsögnin Páll Óskar og heimsfrægi rússneski aktívístahópurinn Pussy Riot. Auk þeirra koma fram Izleifur, Inspector Spacetime, Kusk & Óviti, Gróa, Alexander Jarl, Flesh Machine, Geðbrigði og DJ Óli Dóri.
Páll Óskar kom að Rauða borðinu í gærkvöldi og ræddi þessa tónleika og þátttöku sína í þeim, mikilvægi baráttunnar fyrir því að enginn manneskja yrði skilgreind ólögleg og draumsýnina um engin landamæri. En Páll Óskar sagði líka frá sinni baráttu, baráttu samkynhneigðra og kynsegin, en líka frá ástinni og listinni í þssu helgi-spjalli sem hlýða má á hér:
Markmið hátíðarinnar í Iðnó er að skapa vitundarvakningu um réttindabaráttu fólks á flótta og þeirri erfiðu stöðu sem það býr við, bæði á Íslandi og um allan heim, segir í tilkynningu frá No Borders. Fólk á flótta séu manneskjur með rödd, líf og rétt til ferðafrelsis og öryggis.
Ýmsir hliðarviðburðir verða haldnir í Iðnó frá kl. 14:00 og fram að tónleikunum um kvöldið. Sjá má frekari upplýsingar um þennan viðburð á Facebook: Hátíð gegn landamærum 2025