Getum við þá hætt að tala um fjölgun innflytjenda?

Miðflokkurinn, Stefán Einar, Snorri Másson & félagar hafa smíðað ævintýralegar kenningar um hættuna af innrás innflytjenda ofan á tölur um fjölgun innflytjenda í kjölfar ferðamannabólunnar.

Eins og fram hefur komið hér í hópnum er vonlaust að ræða innflytjendamál við Miðflokksfólk og aðra sem gleypt hafa innflytjendastefnu Trump (við höfum orðið fyrir innrás innflytjenda, verðum að verjast henni, annars éta þeir upp samfélagið okkar). Þessi stefna byggir á hugarburði karllægrar kristinnar hvítrar yfirburðarhyggju um hinn efsta dag, um úrslitaorrustu siðmenningarinnar sem við erum öll kölluð til. Og mun líklega enda á því að vopnuð útlendingastofnun fer að skjóta fólk á götum úti, eins og er að verða daglegt brauð í Bandaríkjunum. Hatur er endurnýtanleg auðlind, því meira sem er ausið úr skálum reiðinnar því meira hatur safnast í þær og því heitar brennur það. Þau sem vilja byggja samfélagið á hatri munu uppskera helvíti.

En fyrir okkur hin, sem ekki mætum á trúarsamkomur Miðflokksins eða hlustum á Stefán Einar & co, þá er augljóst að bylgja innflytjenda sem hingað kom í kjölfar Eyjafjallagoss og ferðamannabólunnar er að ganga til baka af efnahagslegum ástæðum. Ferðamönnum er hætt að fjölga, það er stöðnun í byggingariðnaði, atvinnuleysi fer vaxandi og íslenskt atvinnulíf er hætt að draga til sín verkafólk.

Við urðum ekki fyrir innrás innflytjenda, sem hvolfdust yfir samfélagið og eru að eyðileggja það, eins og boðberar hatursins halda fram; heldur kom hingað fólk til að sinna hröðum vexti ferðaþjónustunnar og þenslu í öðrum greinum sem varð til vegna hennar. Og þegar þenslan hjaðnar dregur líka úr hingaðkomu innflytjenda. Þetta ætti öllum að vera augljóst, fólk flytur til landa þar sem vinnu er að fá.

Talað um innrás, opin landamæri…

Þótt heimboð stjórnvalda til flóttafólks frá Venesúela og Úkraínu hafi fjölgað hælisleitendum mikið á skömmum tíma þá eru hælisleitendur aðeins lítill hluti innflytjenda og raska þessa mynd ekki mikið. Það er helst að kúfurinn eftir cóvid, þegar ferðaþjónustan var að reisa sig við, sé aðeins brattari út af fólki frá Úkraínu og Venesúela en flóttafólk annars staðar frá raskar þessari mynd ekki neitt. Í haust hefur flóttafólk frá Úkraínu verið 2/3 til 3/4 allra hælisleitenda flesta mánuði, hælisleitendur sem hingað komu eru fyrst og fremst í sérstöku boði stjórnvalda.

Það er því ekkert hæft í því að innflytjendur flæði hér yfir opin landamæri og séu að grafa undan samfélaginu svo það stefni hratt í átt að siðmenningarlegu hruni eins og Trump og Snorri Másson halda fram.

Stundum er sagt „live by the numbers, die by the numbers“ og er þá átt við að sá sem byggir hátimbraðar kenningar á tölum mun horfa á kenningarnar falla með tölunum. Þetta á t.d. við í auglýsingasölu, ef þú selur auglýsingar út á mikið áhorf tiltekins þáttar í sjónvarpi muntu horfa upp á tekjurnar hverfa þegar þátturinn missir áhorf. Miðflokkurinn, Stefán Einar, Snorri Másson & félagar hafa smíðað ævintýralegar kenningar um hættuna af innrás innflytjenda ofan á tölur um fjölgun innflytjenda í kjölfar ferðamannabólunnar. Talað um innrás, opin landamæri, gríðarlega ásókn fólks í íslenskt velferðarkerfi, að verið sé að skipta út þjóðinni í pólitískum tilgangi, að innflytjendur grafi undan íslenskri menningu og tungu o.s.frv. Nú þegar tölurnar falla ættum við að leyfa þessari stjórnlausu dellu að falla með þeim.

Líklega er ekkert heimskulegra en að halda áfram ræða skaðann af fjölgun innflytjenda þegar sú fjölgun er ekki lengur til staðar.

Grafið sýnir árlega fjölgun innflytjenda eftir ársfjórðungum samkvæmt Hagstofu Íslands. Hagstofan byggir á rauntölum, ekki þvælunni sem rennur út úr sölumönnum haturs. Og þess vegna taka margir ekki mark á Hagstofunni, lifa í heimi þar sem raunveruleikinn er ógn, eitthvað sem verður að halda úti. Það fólk hlustar á Snorra Másson og þakkar honum fyrir að þora að segja satt.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí