Félag í eigu Kristjáns Magnasonar og Jóhanns Guðlaugs Jóhannssonar keypti fyrir um mánuði eitt af kennileitum Austurbæjarins, gamla apótekið við Háteigsveg 1, á 800 milljónir. Viðskiptablaðið greinir frá þessu. Líkt og í svo mörgum húsum miðsvæðis þá hefur þar verið hótelrekstur undanfarin ár og ætla nýir eigendur að halda því áfram.
Seljandi, Jökull Tómasson, hefur ekki átt eignina lengi en hann eignaðist húsið árið 2018. Samkvæmt fasteignavefnum Fastinn keypti hann eignina á 650 milljónir. Sá sem seldi Jökli hafði einnig átt húsið fremur stuttan tíma, en samkvæmt sama vef keypti sá aðili húsið á 220 milljónir síðla árs 2015. Með öðrum orðum þá hefur Austurbæjarapótekið, ríflega 1000 fermetrar að stærð, fjórfaldast í verði á sjö árum.
Mögulega voru miklar endurbætur á þessu sjö ára tímabili sem gefa tilefni til þess að verðþróun gamla apóteksins hafi verið svo öfgakennd. Líklegra er þó að þetta sé enn eitt dæmið um fasteignabólu. Þess má geta að síðastliðinn september tilkynnti Seðlabankinn að engin fasteignabóla væri lengur á höfuðborgarsvæðinu.