Verðmæti Play fallið um helming á einu ári

Hlutabréfaverð í Play hefur fallið um helming á einu ári. Og það féll enn í gær og í dag eftir tilkynningu um afkomu sem var mun lakari en áætlanir sögðu til um. Og félagið tapaði 430 á þriðja ársfjórðungi, frá júlí-september, sem að öllu jöfnu ætti að vera besti ársfjórðungur flugfélags.

Skýringar Birgis Jónssonar forstjóri eru meðal annars þær að Ísland sé uppselt þegar kemur að gistingu, bílaleigubílum og öðru slíku. Því hafi ekki verið hægt að fylla vélar Play með fólki á leið til og frá Íslandi og lokka hefði þurft fólk í flug sem flýgur gegnum Keflavík og stoppar ekki á landinu. Þetta merkir auðvitað að framboð Play á flugsætum var meira en þörf var á, meira en Ísland gat staðið undir.

Fyrir ári síðan var hlutafé Play metið á 19,8 milljarða króna. Í dag er það metið á 9,9 milljarða króna. 9,9 milljarðar króna eru farnir til Money Heaven, eins og maður orðaði það um árið. Þessi niðursveifla frá því að verið var að létta öllum sóttvarnarreglum vegna cóvid og til dagsins í daf sýnir mat hins svokallaða markaðar á árangri Play.

Í júní 2021 voru boðnir út 222 milljón hlutir í Play og seldust þeir á 4,3 milljarða króna. Nú er verðmæti þessara hluta 3,1 milljarður króna. Þau sem tóku þátt í útboðinu fyrir tæpu einu og hálfu ári hafa tapað um 1,2 milljarði króna.

Nú vill Play sækja meiri pening. Stefnt er að sækja 2,3 milljarða króna, sem miðað við gengi dagsins væri útboð á um 165 milljón hlutum. Kaupendur í þessum tveimur útboðum ættu eftir það um 45% af hlutum félagsins en upphaflegir stofnendur og fjárfestar 55%.

En það á eftir að koma í ljós hvort verð á hlutum í Play haldist og áhugi sé jafn mikill á þessu félagi og stjórnendur þess vona. Ef verðið fellur er líklegt að nýir hluthafa vilji fá meiri áhrif innan Play og ekki víst að stofnendur geti haldið meirihluta atkvæða meðan loforð þeirra um árangur ganga ekki eftir.

Myndin er af slagorði Play, sem í dag hljómar fyrir fjárfestum eins og nafn á hryllingsmynd.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí