Leiðtogi sósíalista í Noregi kærður fyrir að stela sólgleraugum

Bjørnar Moxnes, leiðtogi vinstri sósíalistaflokksins Rødt í Noregi hefur verið kærður fyrir stuld á sólgleraugum úr búð á alþjóðaflugvellinum í Osló, Gardermoen. Atvikið átti sér stað fyrr í júni, en var upplýst í fjölmiðlum þar í landi í gær.

Í samtali við VG lýsir Moxnes hlutunum þannig að hann hafi verið í búð með kærustu sinni og voru þau að skoða sólgleraugu. Hann segist hafa stungið pari í hugsunarleysi í vasann, haldandi að þau hafi verið sín. Þau yfirgefa svo búðina, hann með gleraugun í vasanum. Hann segist svo hafa áttað sig á þessu 10-15 mínútnum seinna. Eins og hann lýsir því sjálfur, þá hafi hann farið í ákveðið panikk, rifið miðann af gleraugunum og sett þau í ferðatösku sína. Rétt eftir að hann gerir þetta, þá koma öryggisverðir sem höfðu verið að fylgjst með honum, og ræða við hann.

Lögregla hefur farið yfir upptökuna af allri atburðarrásinni, sem leiddi til þeirrar niðurstöðu að hann sé ákærður fyrir stuld.

Þetta er mjög vandræðalegt mál fyrir Rødt, sem vann stóran sigur í síðustu kosningum í Noregi. Moxnes segir að það sé í höndum flokksins að ákveða hvort þau treysti honum áfram sem leiðtoga. Annar þingmaður flokksins Sofie Marhaug hefur skrifað á Facebook að hún beri enn traust til hans. Hver eftirköstin verða nákvæmlega kemur þó væntanlega í ljós á næstu dögum.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí