Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Vikuskammtur: Vika 1arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Árni Sveinsson kvikmyndagerðarmaður, Týr Þórarinsson aka Mummi í Mótorsmiðjunni, Imur Kristjánsdóttir leikkona og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir sviðshöfundur og ræða fréttir fyrstu viku ársins sem einkenndust af óvæntum tilkynningum, tilraunum til fyndni, flensu, kjaraviðræðum, mótmælum og meðmælum.
Forsetaframboð, Siggi hakkari og áhrif loftslagsbreytinga á heilsuarrow_forward
Við fáum Andri Snær Magnason rithöfund til að lýsa því fyrir okkur hevr sú raun er að ganga í gegnum forsetakosningar. Hann segir okkur frá eigin reynslu og hvers vegna hann var svona lengi að jafna sig eftir hana. Stöð 2 er að fara að sýna heimildarmyndina A Dangerous Boy um Sigurður Ingi Þórðarson aka Sigga hakkara. Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson blaðamaður kemur og segir okkur frá þessum manni, en Bjartmar afhjúpaði að flest það sem Siggi sagði FBI, og sem síðan varð límið í ákærunni gegn Julian Assange, var lygi. Síðan kemur Hjalti Már Björnsson bráðalæknir og segir okkur frá áhrifum loftslagsbreytinga á heilsu okkar, en líka frá slæmum afleiðingum einkabílsins á líkamlega, andlega og félagslega heilsu okkar.
Efnahagurinn 2024, heimsmálin og Soviet Barbaraarrow_forward
Við byrjum á að fá tvö ritstjóra til að horfa fram á árið 2024. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar spáir í efnahaginn og Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks spáir í heimsmálin, stríð, átök og veikleika lýðræðisins. Í lokin förum við svo til Moskvu. Gaukur Úlfarsson kvikmyndagerðarmaður og Guðni Tómasson útvarpsmaður gerðu heimildarmynd um Bjarmalandsför Ragnars Kjartanssonar myndlistarmanns, sem fékk skjótan endi þegar Pútín réðst inn í Úkraínu. Við spyrjum þá hvers konar mynd þetta eiginlega var, Soviet Barbara.
Vikuskammtur: Ársuppgjörarrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Transparency International á Íslandi, Elín Oddný Sigurðardóttir verkafnastýra, Jökull Sólberg Auðunsson forritari og Margrét Hugrún Gústavsdóttir blaðamaður og mannfræðinemi og ræða fréttir ársins sem einkenndust af átökum, stríði, óróa, jarðskjálftum, hneykslum, verðbólgu, vitlíki og veseni.
Heimsmálin, nýfrjálshyggja, Islam, evranarrow_forward
Jón Ormur Halldórsson kemur að Rauða borðinu og ræðir heimsmálin. Kristin Vala Ragnarsdóttir kemur og ræðir um nýfrjálshyggju. Kristján Þór Sigurðsson kemur og segir okkur frá samfélagi múslima á Íslandi. Og Thomas Möller kemur til að halda því fram að evran muni leysa flest efnahagsleg vandamál Íslendinga.
Lífeyrissjóðir og fyrirtæki, búseti og endalok vaxtararrow_forward
Við fáum góðan gest frá Danmörku, Guðrúnu Johnsen, sem starfar við danska Seðlabankann. Hún hefur rannsakað fyrirtækjarekstur á Norðurlöndunum og ekki síst með tilliti til þess hversu stórir eftirlaunasjóðirnir eru. Hún segir okkur frá völdunum í atvinnulífinu, þar sem við störfum og lifum stóran hluta vökutímans. Páll Gunnlaugsson arkitekt hefur skrifað bók um Búseta, húsnæðissamvinnufélagið sem tókst að byggja upp fyrir fjörutíu árum. Við fáum hann til að segja okkur þá sögu. Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur sem sinnt hefur umhverfishugvísundum á liðnum árum segir okkur frá hagfræði, þekkingu, verðleikum og vistkerfi.
Helgi-spjall: Páll Bieringarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Páll Biering geðhjúkrunarfræðingur, skáld og eftirlaunamaður frá uppvexti sínum og ætt, uppreisnum og áföllum, starfi með unglingum og flóttafólki og því sem mótaði hann og leiddi.
Vikuskammtur: Vika 50arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Aldís Yngvadóttir keramiker, Eyrún Björk Jóhannsdóttir varaformaður Flugfreyjufélagsins, Helgi Steinar Gunnlaugsson blaðamaður og Þórdís Gísladóttir rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum, stríði og verkföllum en líka af aðdraganda jóla, samkomulagi og leit að lausnum.
Píratar, dönskukennsla, kvenlöggan, verkalýðsflokkar og samfélagsleg ábyrgðarrow_forward
Þórhildur Sunna Ævarsdóttur þingflokksformaður Pírata segir okkur fyrir hvað Píratar standa, hvað þeir vilja og hvernig þeir ætla að ná því í gegn. Kennararnir Álfhildur Leifsdóttir og Hólmfríður Árnadóttir köstuðu því upp að kannski ættum við að hætta að kenna dönsku. Við spyrjum hvort þær meina það í alvöru. Eyrún Eyþórsdóttir lektor í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri segir okkur frá kvenlögreglunni frá því á árum áður. Kjartan Valgarðsson vill halda því fram að Samfylkingin sé verkalýðsflokkur. Við fáum hann til að rökstyðja það. Í lokin segir Eiríkur Smári Sigurðarson, rannsóknarstjóri hugvísindasviðs Háskóla Íslands, okkur frá samfélagsábyrgð háskóla.
Efnahagsleg krísa, andkristur, skólar og lífrænn landbúnaðurarrow_forward
Við fáum Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðing í fjármálum til að segja okkur frá minnkandi hagvexti, mikill verðbólgu, háum vöstum og fallandi krónu. Sigríður Þorgeirsdóttir prófessor segir okur frá Andkristi um Nietzsche, Jesús og Páli postula og konunum sem hafa bætt hugsun þeirra allra. Benedikt Sigurðarson fyrrverandi skólastjóri segir okkur frá sínu mati á niðurstöðum Pisa og Kristján Oddsson bóndi á Neðri-Hálsi í Kjós segir okkur frá hvernig hann stundar sinn lífræna búskap.