Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Flokkur fólksins, Jesús og nýfrjálshyggjan

Flokkur fólksins, Jesús og nýfrjálshyggjanarrow_forward

S04 E111 — 08/24/2023

Við höldum áfram að tala við forystufólk þingflokkanna. Í dag kemur Inga Sæland að Rauða borðinu og segir okkur um hvað pólitík Flokks fólksins snýst. Þá kemur Davíð Þór Jónsson prestur að borðinu og greinir hver stefna Jesús Krists var í flóttamannamálum. Og í lokin segir Sigríður Á. Andersen okkur frá gagnrýni frjálshyggjufólks á Sjálfstæðisflokkinn.

Vextir, vond efnahagsstjórn og Alzheimer

Vextir, vond efnahagsstjórn og Alzheimerarrow_forward

S04 E110 — 08/23/2023

Vextir voru hækkaðir í morgun við lítinn fögnuð landsmanna. Þau koma að Rauða borðinu hagfræðingar verkalýðshreyfingar til að ræða stöðuna: Róbert Farestveit frá Alþýðusambandinu, Vilhjálmur Hilmarsson frá BHM og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir frá BSRB. Er vit í peningamálastefnunni? En ríkisfjármálum? Ragna Þóra Ragnarsdóttir kemur síðan og segir okkur frá lífi sínu með alzheimer, en eiginmaður hennar Guðlaugur Níelsson greindist fyrir fimm árum. Ragna Þóra segir okkur frá áhrifum sjúkdómsins á Gulla, hana sjálfa, vini og vandamenn og hvernig samfélagið tekur veiku fólki.

Verkó, Viðreisn og félagslegur Darwinismi

Verkó, Viðreisn og félagslegur Darwinismiarrow_forward

S04 E109 — 08/22/2023

Vilhjálmur Birgisson ætlar að bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku í Starfsgreinasambandinu. Hann kemur að Rauða borðinu og ræðir komandi samninga, liðna samninga, svikin loforð, hvali, vaxtaokur og margt fleira. Við höldum áfram að ræða pólitík við forystufólk flokkanna. Í kvöld er röðin komin að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formanni Viðreisnar. Hvað vill sá flokkur? Í lokin kemur Ástþór Óðinn Ólafsson grunnskólakennari á Ásbrú og segir okkur frá félagslegum Darwinisma sem hefur eitrað samfélagið og heldur niðri þeim sem helst þurfa að rísa upp.

Braggahverfi nútímans, stjórnmálakreppa til hægri

Braggahverfi nútímans, stjórnmálakreppa til hægriarrow_forward

S04 E108 — 08/21/2023

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar kemur að Rauða borðinu og ræðir braggahverfi nútímans í tilefni af brunanum í Hafnarfirði. Erum við á leið í aftur á bak, hröðum skrefum? Arnar Þór Jónsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins líka og ræðir kreppu hægrisins og Sjálfstæðisflokksins, en hann hefur verið í opinni uppreisn gegn forystu flokksins? Hvers vegna líður hægrinu svona illa? spyrjum við Arnar Þór, eins og aðra hægrimenn sem koma að Rauða borðinu í haust.

Vikuskammtur: Vika 33

Vikuskammtur: Vika 33arrow_forward

S04 E107 — 08/18/2023

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Arnar Eggert Thoroddsen blaðamaður og poppfræðingur, Jasmina Vajzović Crnac, sérfræðingur í málefnum flóttafólks og innflytjenda, Morgane Priet-Mahéo umhverfisfræðingur og Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari og ræða fréttir vikunnar sem litaðar eru af hertri stenu í málefnum flóttamanna, umræðu um breytingar samfélagsins vegna fjölgunar ferðamanna og innflytjenda og framtíð íslenskunnar.

Píratar og óréttlátt dómskerfi

Píratar og óréttlátt dómskerfiarrow_forward

S04 E106 — 08/17/2023

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir mætir að Rauða borðinu og ræðir pólitík. Hverjir eru Píratar, hvaða mál eru mikilvægust og um hver eru helstu átökin í samfélaginu, Jörgen Ingimar Hansson þurfti að reka mál í gegnum dómskerfið og reynslan fékk hann til að skrifa bók um hversu höllum fæti almenningur stendur í réttarsölunum gagnvart hinum ríku og valdamiklu. Ingimar segir okkur þessa sögu við Rauða borðið.

Rót á hægrinu og óöld í Ekvador

Rót á hægrinu og óöld í Ekvadorarrow_forward

S04 E105 — 08/16/2023

Við byrjum að ráð ástandið á hægrinu á Íslandi, villikettina í Sjálfstæðisflokknum og óánægju íhaldsmanna með ríkisstjórnina við þá  Björn Inga Hrafnsson & Gísla Frey Valdórsson. Spurningin er: Hvers vegna líður hægrinu svona illa? Við förum síðan til Ekvador í fylgd Alex Jativa Ramos sem lýsir fyrir okkur pólitískum morðum, auknum völdum glæpagengja og spillingu stjórnmálanna í þessu fallega landi.

Rauða borðið – framlenging: Heimsveldaátök

Rauða borðið – framlenging: Heimsveldaátökarrow_forward

S04 E104 — 08/15/2023

Við ræðum við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um ólíka afstöðu Víetnam og Úkraínu í veröld sem stórveldin vilja stjórna. Hvor leiðin er heillavænlegri, varkár sigling Víetnama milli stórveldanna eða ákafi Úkraínu í að tengjast öðru hvoru liðinu. Við ræðum einnig vöxt Kína og hlutverk þess í breyttri heimsmynd, kalt stríð milli stórveldanna og McCarthyismann sem fylgir slíku stríði.

Flóttafólk, eftirlaunafólk og samviskan

Flóttafólk, eftirlaunafólk og samviskanarrow_forward

S04 E104 —

Við ræðum við Nínu Helgadóttur teymisstjóra hjá Rauða krossinum um stöðu flóttamanna sem ríkisstjórnin hefur hent út á götu. Þá kemur Viðar Eggertsson til okkar og ræðir um hagsmunabaráttu eftirlaunafólks. Í lokin kemur Páll Baldvin Baldvinsson og segir okkur frá móttöku flóttafólks frá þriðja ríkinu á árunum fyrir seinna stríð, sem fæst fékk að dvelja hér.

Börn á leikskólum og vöggustofum og flóttafólk á götunni

Börn á leikskólum og vöggustofum og flóttafólk á götunniarrow_forward

S04 E103 — 08/14/2023

Við fáum þær Dagnýju Aradóttur Pind, lögfræðing BSRB, og Önnu Mjöll Guðmundsdóttur, formann samtakanna Fyrstu fimm, að Rauða borðinu að ræða leikskóla í tilefni af aðgerðum Kópavogsbæjar. Hvað er foreldrum fyrir bestu? Starfsfólkinu? Börnunum? Við ræðum við Helenu Ólafsdóttur, öryggisfulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum, um flóttamannastefnu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, sem hún hefur gagnrýnt harðlega. Síðan kemur Árni H. Kristjánsson sagnfræðingur til okkar og segir okkur frá vöggustofum sem voru reknar í Reykjavík á síðustu öld, bæði sem sagnfræðingur sem skoðað hefur málið en líka sem uppkomið vöggustofubarn.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí