Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Ofbeldi gegn hommum og pólitíkinarrow_forward
Í síðasta sumarþætti Rauða borðsins kemur Tryggvi Rúnar Brynjarsson sagnfræðingur og segir okkur frá hryllilegu ofbeldi gagnvart hommum, manndrápstilraun og morði, og hvernig ríkisvaldið brást við, fjölmiðlar og hinsegin samfélagið. Sigurjón Magnús Egilsson blaðamaður kemur síðan og ræðir pólitíska stöðu við bróður sinn Gunnar Smára.
Spilltir bankar og pólitík án traustsarrow_forward
Við fáum Ásgeir Brynjar Torfason til að útskýra fyrir okkur ágalla íslenska bankakerfisins í sumarþætti Rauða borðsins. Er spillingin inngróin og kerfislæg? Og Sigurjón Magnús Egilsson til að skýra stöðuna á pólitíkinni í vikulegu samtali við Gunnar Smára, bróður sinn. Ætlar ríkisstjórnin að hanga á völdunum þrátt fyrir að vera rúin trausti?
Heilsa Sjálfstæðisflokksinsarrow_forward
Bræðurnir og blaðamennirnir Gunnar Smári og Sigurjón Magnús Egilssynir fara yfir stöðuna á ríkisstjórninni og einkum heilsuna á Sjálfstæðisflokknum. Mun Bjarni lifa uppreisnina af? En ríkisstjórnin?
Veik, frosin eða steindauð?arrow_forward
Í sumarþætti Rauða boðsins segir Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna okkur frá tillögum innviðaráðherra um húsaleigulög. Hann er ekki hress með þær. Síðan fara bræðurnir og blaðamennirnir Gunnar Smári og Sigurjón Magnús Egilssynir yfir stöðuna á ríkisstjórninni, forystufólkinu og flokkunum þeirra. Er stjórnin lifandi eða dauð, getur hún lafað mikið lengur?
Pólitísk skjálftamælingarrow_forward
Í sumarþætti Rauða borðsins kemur Sigurjón Magnús Egilsson blaðamaður á pólitískri skjálftavakt og ræðir möguleika á stjórnarslitum við Gunnar Smára bróður sinn.
Helgi-spjall: Helga Valaarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Helga Vala Helgadóttir frá sér og sínu fólki og skýrir út hvers vegna hún er eins og hún, hvaða áhrif uppeldið hafði á hana, leiklistin, lögfræðin, pólitíkin en líka allt hitt.
Vikuskammtur: Vika 27arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Erna Mist pistlahöfundur og myndlistarkona, Ýrr Baldursdóttir listamaður og mótmælandi, Kjartan Sveinsson trillukarl og formaður Strandveiðifélagsins og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtaka og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af pólitískum skjálfum og hræringum.
Spilling, pólitík og geðlyfarrow_forward
Eftir fréttayfirlit fáum við Atla Þór Fanndal framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Transparency International til að greina fyrir okkur Lindarhvolsskýrslu Sigurðar Þórðarsonar. Þá kemur Sigurjón Magnús Egilsson blaðamaður og greinir fyrir okkur lífslíkur ríkisstjórnarinnar. Í lokin ræðum við við Grím Atlason framkvæmdastjóra Geðhjálpar um geðlyfjanotkun barna.
Samsæri og getuleysi stjórnvaldaarrow_forward
Eftir fréttayfirlit kemur Hulda Þórisdóttir að Rauða borðinu og segir okkur frá samsæriskenningum og áhrif þeirra á umræðuna. Við ræðum síðan við Helen Ólafsdóttur um getuleysi stjórnvalda til að mæta mikilvægustu málunum, ójöfnuði og loftlagsvá.
Lifir ríkisstjórnin þetta af?arrow_forward
Eftir fréttayfirlit fáum við Ólaf Þ. Harðarson að Rauða borðinu og ræðu við hann um afleita stöðu Vg og Framsóknar í könnunum og lítið traust almennings á ríkisstjórninni. Mun stjórnin lifa sumarið af?