Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Fatlaðir, Marx og sósíalískir feministar

Fatlaðir, Marx og sósíalískir feministararrow_forward

S04 E092 — 07/03/2023

Eftir fréttayfirlit kemur Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður ÖBÍ að Rauða borðinu og segir okkur frá baráttu öryrkja og við hvaða öfl þeir eru að kljást. Síðan koma þær Laufey Líndal Ólafsdóttir, María Pétursdóttir og Sara Stef Hildar til okkar og segja frá Marxísku festivali Sósíalíska verkamannaflokksins í Bretlandi.

Helgi-spjall: Þorvaldur Gylfason

Helgi-spjall: Þorvaldur Gylfasonarrow_forward

S04 E091 — 07/01/2023

Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Þorvaldur Gylfason frá sér og sínu fólki og skýrir út hvers vegna hann er eins og hann, hvers vegna hann skammar yfirstéttina og hvers vegna hann er fullur vonar þótt útlitið sé svart.

Vikuskammtur: Vika 25

Vikuskammtur: Vika 25arrow_forward

S04 E090 — 06/30/2023

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður, Kolbrún Valvesdóttir verkakona, Guðbjörn Guðbjörnsson formaður Tollvarðafélagsins, óperusöngvari og stjórnsýslufræðingur og Valdimar Örn Flygenring leikari og leiðsegjari og ræða fréttir vikunnar sem einkennuist af spillingu, skandölum og pólirtískum skjálfta.

Spilling, mannvirðing og pólitík

Spilling, mannvirðing og pólitíkarrow_forward

S04 E089 — 06/29/2023

Eftir fréttir dagsins koma Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis og Henry Alexander Henrysson rannsóknasérfræðingur hjá Siðfræðistofnun og ræða mál vikunnar: Íslandsbankasöluna. Hvað segir þetta mál um okkar samfélag? Lærum við aldrei? Er samfélagið gerspillt? Í fyrri viku var hjúkrunarfræðingur sýknaður  héraðsdómi fyrir manndráp á sjúklingi á geðdeild. Við ræðum við Sigríði Gísladóttur, formann Geðhjálpar, um þennan dóm. Merkir hann að líf sjúklinga á geðdeild er svo lítils virði að enginn ber ábyrgð þegar þeir deyja af völdum starfsfólks? Í lok þáttarins kemur Sigurjón Magnús Egilsson blaðamaður og ræður um pólitíkina við bróður sinn, Gunnar Smára.

Breiðholtið sem staður, hugarástand og hugtak

Breiðholtið sem staður, hugarástand og hugtakarrow_forward

S04 E088 — 06/28/2023

Við tileinkum þátt kvöldsins Breiðholtinu. Eftir fréttir dagsins ræðum við þær Dýrfinnu Benitu Basalan, Melanie Ubaldo og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur um Breiðholtið sem hverfi, sem hugarástand, sem slömm, sem skammaryrði og samfélag. Þær segja frá fátækt og vangetu kerfisins til að mæta fátækum börnum, frá fordómum sem dynja á þeim ekki eru hvít og frá samfélagi hinna fátæku og jaðarsettu. Og hvernig það er að ganga með Breiðholtið innra með sér þótt fólk sé flutt burt.

Auðvaldið, spillingin & líf sem er þess virði að lifa því

Auðvaldið, spillingin & líf sem er þess virði að lifa þvíarrow_forward

S04 E087 — 06/27/2023

Við segjum fréttir dagsins og fáum svo Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar að Rauða borðinu og spyrjum hana um einmitt þetta, frétti dagsins og fáum hana til að segja okkur hvað hún les úr þeim. Síðan kemur Ólafur Páll Jónsson prófessor og segir okkur frá lífi sem er þess virði að lifa því. Kannski ekki bókstaflega heldur frá kúrsum í Yale-háskóla þar sem nemendum er leiðbeint um akkúrat, að finna lífsleið sem er þess virði.

Íslandsbankasalan, spilling og slúður

Íslandsbankasalan, spilling og slúðurarrow_forward

S04 E086 — 06/26/2023

Við segjum fréttir dagsins og ræðum síðan Íslandsbankasöluna við þá Þorvaldur Gylfason, Atli Þór Fanndal og Ásgeir Brynjar Torfason. Hvernig gat þetta gerst? Hver ber ábyrgð? Hversu spillt er Ísland. Við fáum síðan Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur í heimsókn frá Þórshöfn, en hún hefur rannsakað slúður. Er stundum kölluð doktor Slúður.

Helgi-spjall: Magga Stína

Helgi-spjall: Magga Stínaarrow_forward

S04 E085 — 06/24/2023

Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Magga Stína frá sósíalísku uppeldi sínu, árunum á Hlemmi og öðru sem mótaði hana og gerði henni af því sem hún er í dag. Og um samfélagið sem ólst upp innan og hvernig það hefur breyst.

Vikuskammtur: Vika 25

Vikuskammtur: Vika 25arrow_forward

S04 E084 — 06/23/2023

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Alexandra Ýr van Erden froseti Landssambands stúdenta, Björgvin G. Sigurðsson kennari, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir uppistandari og Hringur Hafsteinsson hönnurður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af pólitískum skjálfta, deilum og ósætti.

Palestína, pólitísk og efnahagsleg krísa

Palestína, pólitísk og efnahagsleg krísaarrow_forward

S04 E083 — 06/22/2023

Við förum yfir fréttir dagsins og ræðum síðan við Ásgeir Brynjar Torfason um efnahagslega vandann sem ráðherrarnir virðast vera að flýja með umræðum um nánast allt annað. Gengur það að reka ríkissjóð með miklum halla í bullandi góðæri og verðbólgu? Hvernig ætlar ríkisstjórn sem lítið hefur gert að mæta til kjaraviðræðna í haust, þar sem allt er undir? Það verður fundur um Palestínu og Ísrael í Safnahúsinu á laugardaginn. Hjálmtýr Heiðdal formaður félagsins Ísland-Palestína kemur að Rauða borðinu og segir okkur frá átökum innan Ísrael, kúgun á Palestínumönnum og hvernig íslensk stjórnvöld ættu að bregðast við.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí