Samtal á sunnudegi
Samtal á sunnudegi tekur málefni til umræðu í syrpum nokkurra þátta. Fyrsta syrpan er um verkalýðsmál. Þar leiðir Sigurður Pétursson sagnfræðingur samtalið. Í hverjum þætti kemur gestur eða gestir og ræðir tiltekið mál, söguskeið, greiningu eða baráttuaðferðir.

Klippur

Hver er lærdómurinn af verkalýðsbaráttu í meira en 100 ár?
Sigurður Pétursson sagnfræðiingur fer yfir lærdóminn af tíu þáttum Samtals á sunnudegi um verkalýðsmál.

Mun Efling yfirgefa Starfsgreinasambandið?
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ræðir verkalýðsbarátta láglaunafólks í dag í Samtali á sunnudegi um verkalýðsbaráttu. Hver er stefna og …

Er auðstéttin ákafari og róttækari í stéttastríðinu en alþýðan?
Stefán Ólafsson prófessor hefur undanfarið starfað sem sérfræðingur og setið í samninganefnd félagsins. Hann ræðir þá reynslu í Samtali á …

Er stéttabarátta niðurrifsafl eða byggir hún upp góð samfélög?
Guðmundur Ævar Oddsson er sérfræðingur í stéttum og stéttabaráttu, doktor einmitt á því sviði. Í samtali á sunnudegi lýsti hann …
Þættir

Lærdómurinnarrow_forward
Sigurður Pétursson sagnfræðiingur fer yfir lærdóminn af tíu þáttum Samtals á sunnudegi um verkalýðsmál.

BSRB: Barátta opinberra starfsmannaarrow_forward
Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB ræðir verkalýðsbarátta opinberra starfsmanna í dag við þá Sigurð Pétursson sagnfræðiing og Gunnar Smára Egilsson.

Efling: Barátta láglaunafólksarrow_forward
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ræðir verkalýðsbarátta láglaunafólks í dag í Samtali á sunnudegi um verkalýðsbaráttu við þá Sigurð Pétursson sagnfræðiing og Gunnar Smára Egilsson.

Baráttan um bjargirnararrow_forward
Stefán Ólafsson prófessor hefur undanfarið starfað sem sérfræðingur og setið í samninganefnd félagsins. Hann ræðir þá reynslu í samtali á sunnudegi um verkalýðsmál en ekki síður um bók sína, Baráttan um bjargirnar, þar sem meginstefið er áhrif verkalýðsbaráttunnar á samfélagið.

Stéttirarrow_forward
Verkalýðsbarátta er stéttabarátta og við ræðum stéttir í samtali á sunnudegi um verkalýðsmál að þessu sinni. Guðmundur Ævar Oddsson félagsfræðing ræðir ólíkar stéttaskilgreiningar og hvernig stéttabaráttan hefur mótað samfélagið.

Konurarrow_forward
Kvennabaráttan er ekki alveg samfléttuð við verkalýðsbaráttuna. Því miður mætti segja. Í upphafi var konum haldið frá stéttarfélögum og það tók langan tíma fyrir konur að setja mark sitt á heildarsamtök verkalýðshreyfingarinnar. Ragnheiður Kristjánsdóttir sagnfræðingur kemur í samtal á sunnudegi og ræðir um konur og verkalýðsbaráttu.

Velferðarríkiðarrow_forward
Saga velferðarríkisins er nátengt verkalýðsbaráttunni á Vesturlöndum, bæði hugmynd og framkvæmd. Guðmundur Jónsson sagnfræðingur segir okkur frá baráttunni fyrir velferðarríkinu, bæði þegar reynt var að koma á því á og síðar þegar baráttan snerist um að verja það. Hver var hlutur verkalýðshreyfingarinnar í þeirri baráttu.

Ójöfnuðurarrow_forward
Í fjórða Samtalinu á sunnudegi um verkalýðsmál kemur Sigrún Ólafsdóttir prófessor og ræðir um rannsóknir á ójöfnuði, birtingarmyndum hans og áhrifum. Baráttan gegn ójöfnuði var lykilatriði verkalýðsbaráttunnar á síðustu öld og er enn. Hver eru áhrif ójöfnuðar á einstaklinga, stéttir og samfélagið allt?

Lög & rétturarrow_forward
Í þriðja Samtalinu á sunnudegi um verkalýðsmál kemur Gísli Tryggvason lögfræðingur og ræðir um lagalegt umhverfi stéttarfélaga og vinnudeilna. Gísli hélt utan um endurskoðun vinnulöggjafarinnar 1996, var framkvæmdastjóri BHM og þekkir vel til lagaumhverfis verkalýðshreyfingarinnar. Hverjar eru takmarkanir samnings- og verkfallsréttar? Styður eða hemur lagaumhverfið baráttu verkafólks?

Nýfrjálshyggjaarrow_forward
Í öðru Samtalinu á sunnudegi um verkalýðsmál kemur Ögmundur Jónasson og segir frá verkalýðsbaráttunni á tímum nýfrjálshyggjunnar, en Ögmundur var formaður starfsmannafélags Sjónvarpsins og síðar formaður BSRB á því tímabili. Hver voru viðbrögð nýfrjálshyggjunnar gegn verkalýðsbaráttu og hver voru viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar við nýfrjálshyggjunni?