Skattleggja á hátekjuhópa til að hemja ofneysluna

Peningamál 24. nóv 2022

„Það sem væri eðlilegra að gera væri að setja strax á aukna skatta á hærri tekjuhópa og stóreignafólk, til að hemja ofneyslu þeirra sem eru að skapa þennan vanda,“ skrifar Stefán Ólafsson prófessor og sérfræðingur Eflingar á Vísi. „Jafnvel mætti takmarka utanlandsferðir eða skattleggja þær sérstaklega til að hemja óhófið.“

Stefán skrifar í kjölfar enn einnar hækkunar Seðlabankans á stýrivöxtum sem réttlætt er með rökum um að einkaneysla sé of mikil. „Kaupmáttur sé of mikill. Of margir fari of oft til Tenerife. Of miklu sé eytt erlendis. Viðskiptahalli sé því of mikill og gengi krónunnar hefur lækkað (eða öllu heldur Seðlabankinn hefur leyft genginu að lækka – sem svo eykur verðbólgu enn frekar),“ skrifa Stefán.

„Stýrivaxtahækkanir á árinu hafa þegar gengið út í öfgar,“ skrifar hann. „Við erum með þrisvar til fimm sinnum hærri stýrivexti en grannþjóðir okkar sem eru jafnvel með meiri verðbólgu en við (ef húsnæðisliðurinn er undanskilinn). Þetta hefur lítil sem engin áhrif haft til að lækka verðbólgu, sem að tveimur þriðju hlutum er innflutt (sjá hér). Það er ekki heil brú í þessu hjá Seðlabankanum!“

„Er það fólk úr lægri tekjuhópunum sem er að þjaka þjóðarbúskapinn með ofneyslu? Fólkið sem á í basli við að ná endum saman?“ spyr Stefán.

Og svarar sjálfum sér: „Auðvitað ekki. Það er fólkið sem er með hærri tekjurnar og á meiri eignir sem skapar vandann. Það eru þau sem fara fimm sinnum til Tenerife á ári. Síðan tekur Seðlabankinn að sér að leggja verulega auknar vaxtabyrðar á skuldugt fólk í lægri tekjuhópunum – til að draga úr neyslu þeirra. Það er verið að hengja verkafólk fyrir hátekjufólk.

Auknar byrðar almenns launafólks, sem glímir þegar við óhóflegan húsnæðiskostnað og stórlega minnkandi húsnæðisstuðning af vaxtabótum, mun ekki draga úr ofneyslu efnaðri hluta þjóðarinnar,“ skrifar Stefán og leggur til að frekar verði gripið til skatta á neyslu hærri tekjuhópa og stóreignafólk.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí