Fordæma Páley fyrir meðferðina á Inga Frey

Páley Borg­þórs­dóttir

Stjórn Blaðamannafélags Íslands fordæmir ákvörðun Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, Páley Borgþórsdóttur, að Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðmaður hljóti stöðu sakbornings í Samherjamálinu. Ingi Freyr, sem starfar hjá Heimildinni, var nýverið boðaður í skýrslutöku en sakarefnið var að hann var viðtakandi tölvupósts. 

Hér fyrir neðan má lesa ályktun stjórnar Blaðamannafélagsins í heild sinni

Stjórn Blaðamannafélagsins fordæmir að enn einn blaðamaðurinn, í þetta sinn Ingi Freyr Vilhjálmsson, hljóti stöðu sakbornings í tengslum við Samherjamálið, fyrir það eitt að sinna störfum sínum. Samkvæmt upplýsingum sem Ingi Freyr fékk hjá lögreglu við skýrslutöku fyrir fáeinum dögum er sakarefnið það eitt að hann var viðtakandi tölvupósts.

Stjórn félagsins lýsir jafnframt yfir miklum áhyggjum af þeirri vegferð sem lögreglan virðist vera á – að það sé nú talið mögulega saknæmt athæfi að taka á móti tölvupóstum eða hvers kyns upplýsingum. Það er einmitt kjarninn í vinnu hvers blaðamanns: Að taka á móti upplýsingum, meta trúverðugleika þeirra og fréttgildi í þágu almennings.

Stjórnin bendir á fáránleika þeirra ákvörðunar Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra að veita blaðamönnum stöðu sakborninga í þessu máli, enda liggur ekki fyrir að þeir hafi gerst sekir um saknæmt athæfi. Ennfremur vill Blaðamannafélagið undirstrika að störf og tjáningarfrelsi blaðamanna njóta ríkrar verndar vegna þess sérstaka hlutverks sem fjölmiðlar gegna með tilliti til opinberrar umræðu í lýðræðisríki. Því ber að gjalda varhug við íhlutan lögreglu sem kann að vera túlkuð sem afskipti af störfum blaðamanna við öflun og miðlun frétta um mikilvæg málefni.

Ingi Freyr hefur, samkvæmt upplýsingum hans frá lögreglu, haft réttarstöðu sakbornings í um hálft annað ár, án þess að vera upplýstur um það. Hann segir lögreglu hafa skýrt það með því að hún hafi ranglega haldið að hann væri búsettur erlendis. Stjórn Blaðamannafélagsins telur þetta lýsandi fyrir vinnubrögð lögreglunnar á Norðurlandi eystra í þessu máli. Þau hafa einkennst af vanþekkingu en ekki síður vanvirðingu gagnvart grundvallarstörfum blaðamanna og hlutverki þeirra, sem og þeirri auknu vernd sem þeir hljóta samkvæmt lögum starfa sinna vegna. Að mati félagsins er rannsóknin í heild tilefnislaus með öllu. Hún er þó til þess gerð að skapa óvissu um lagalegan rétt blaðamanna og ótta innan stéttarinnar um að hver sem er geti hvenær sem er verið kallaður til yfirheyrslu og hlotið réttarstöðu sakbornings fyrir það eitt að fá sendan tölvupóst.

Þá telur Blaðamannafélagið óeðlilegt hve rannsókn þessa máls hefur tekið langan tíma, enda hefur ríkissaksóknari sent lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra erindi þar sem óskað er eftir skýringum á töfunum. Það er íþyngjandi fyrir alla að hafa réttarstöðu sakbornings, en fyrir blaðamenn er það sömuleiðis mikið inngrip inn í tjáningarfrelsi þeirra og störf. Þeim mun mikilvægari almannahagsmuni þarf þar af leiðandi til að réttlæta slíkt inngrip. Stjórn Blaðamannafélagsins krefst þess að lögreglan ljúki rannsókn sinni án frekari tafa.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí