Lindahvolsmálið „sláandi dæmi um leyndarhyggju núverandi ríkisstjórnar“

Stjórn samtakanna Transparency International á Íslandi hefur gefið frá sér yfirlýsingu vegna Lindarhvolsskýrslunnar og atkvæðagreiðslu gegn framlagningu fyrirspurnar síðastliðinn mánudag. Þar segir að samtökin telji málið „sláandi dæmi um leyndarhyggju núverandi ríkisstjórnar“. Samtökin hvetja alla sem hafa tök á því að gerast uppljóstrarar svo hægt sé að afhjúpa málið.

Sjá einnig: „Ríkiseignum er ennþá stolið í stórum stíl líkt og fyrir hrun“

Sjá einnig: Afhjúpar VG-liða á Alþingi: „Þurftu að fresta atkvæðagreiðslu til að funda um málið“

Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsinguna í heild sinni.

Stjórn Transparency International á Íslandi furðar sig á ákvörðun stjórnarliða á Alþingi, síðastliðinn mánudag, að halda upplýsingum frá almenningi. Sú niðurstaða er sláandi dæmi um leyndarhyggja núverandi ríkisstjórnar og ógagnsæi í störfum hennar.

Stjórn Transparency hvetur þingmenn, fjölmiðla, uppljóstrara og aðra þá sem lagt geta gagnsæi lið að gera sitt til að tryggja birtingu Lindarhvolsskýrslunnar. Það er réttur almennings að leyndarhyggju um sölu ríkiseigna ljúki.

Skýrsla setts ríkisendurskoðanda fjallar um sölu og meðferð eigna sem komust í hendur ríkisins eftir bankahrunið á Íslandi 2008, og sendi hann hana umbjóðanda sínum, Alþingi í heild sinni, og ætti hún augljóslega að komast í hendur allra þingmanna.

Komið hefur fram að fulltrúar allra flokka í forsætisnefnd hafi greitt atkvæði með birtingu hennar. Það er því óskiljanlegt að meirihluti þingsins hafi greitt atkvæði gegn fyrirspurn til forseta Alþingis þegar reynt var að knýja fram því hvers vegna hann beitti neitunarvaldi sínu gegn ákvörðun forsætisnefndar.

Stjórn Transparency International á Íslandi harmar athæfi stjórvalda og afstöðu meirihluta Alþingis og telur það vera merki um frumstæða stjórnsýslu sem samræmist engan veginn eðlilegum kröfum um gagnsæi við meðferð opinberra eigna. Slík vinnubrögð grafa undan trausti almennings á stjórnvöldum.

Stjórn Transparency International á Íslandi

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí