Íslensk fyrirtæki geta auðveldlega borgað hærri laun

Stefán Ólafsson, prófessor emiritus í félagsfræði, segir í pistli sem hann birtir á Facebook að íslensk fyrirtæki geti auðveldlega borið aukinn launakostnað. Hann segir að Ísland sé fyrir neðan meðallag í raunvirði launakostnaðar. Á dögunum benti hann á að það sé mýta að laun á Íslandi séu óvenju há.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Stefáns.

Um daginn birti ég hér mynd af árlegum heildarlaunakostnaði fyrirtækja í Evrópulöndum, á raunvirði (í kaupmáttarjöfnuðum Evrum). Í dag birti ég samsvarandi tölur en nú er það launakostnaður „á hverja vinnustund“, sem er markvissari mæling. Það á ekki síst við um Íslendinga sem vinna lengri vinnuviku en flestar aðrar Evrópuþjóðir.

Sjá einnig: Lygi að laun séu með hæsta móti á Íslandi 

Ég sýni tölurnar með og án leiðréttingar vegna mismunandi verðlags. Miðað er við fullvinnandi launafólk og samanlögð laun og launatengd gjöld. Súlurnar fyrir „raunvirði“ (með kaupmáttarjöfnun) eru tölurnar sem gilda í samanburðinum – en talsmenn atvinnurekenda (SA) vilja frekar miða við óleiðréttu tölurnar eða bara allt aðrar tölur sem mæla eitthvað annað en staðlaðan launakostnað. Tölurnar eru frá Eurostat (sjá hér)

Ísland er fyrir neðan meðallag í raunvirði launakostnaðar! Íslensk fyrirtæki eiga því auðveldlega að geta borið aukinn launakostnað.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí