Finnur fýkur úr stjórn Íslandsbanka – Fjórir í stjórn sitja sem fastast

Þrír af sjö stjórnarmönnum í Íslandsbanka hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu hjá Íslandsbanka. Finnur Árnason stjórnarformaður, Guðrún Þorgeirsdóttir varaformaður og Ari Daníelsson hafa öll ákveðið að hætta, samkvæmt skýrslu tilnefningarnefndar, en Viðskiptablaðið greinir frá henni. Stjórnarkjör fer fram á hluthafafundi í lok mánaðar.

Íslandsbankahneykslið ætti að vera flestum ferskt í minni en margir hafa kallað eftir því að það hafi afleiðingar fyrir stjórnarmenn bankans að hafa blessað lögbrotið, þrátt fyrir ábendingar fjármálaeftirlitsins. Stjórnin lagið til sektargreiðslu til að losna undan frekari málarekstri

Finnur er fyrrverandi forstjóri Haga en nú sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarmaður. Guðrún er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá PayAnalytics ehf. Ari er sjálfstætt starfandi stjórnarmaður og fjárfestir.

Tilnefningarnefndin leggur til að Linda Jónsdóttir og Stefán Pétursson komi í þeirra stað og  valnefnd Bankasýslu ríkisins leggur til að sá þriðji verði Haukur Örn Birgisson. Fjórir stjórnarmenn virðast ætla að sitja sem fastast en það eru: Anna Þórðardóttir, Agnar Tómas Möller, Frosti Ólafsson og Valgerður Skúladóttir.  

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí