„Innviðirnir þola ekki þetta mikla álag sem ferðamannaiðnaðurinn skapar“

Verkalýðsmál 29. ágú 2023

Þátttakendur í pallborðsumræðum um umhverfismál og loftslagsbreytingar sem tóku til máls voru Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, Tomas Oskarsson, ritari ST stéttarfélags í Svíþjóð, og Súni Falkvard Selfoss formaður Starvsfélagsins í Færeyjum.

Þórarinn Eyfjörð ræddi um loftslagsmálin og hvernig Sameyki hefur lagt sitt af mörkum til að vekja athygli á loftslagsmálum í heimalandinu t.d. með trúnaðarmannakerfi félagsins, ritaðra greina um loftslagsmál og ráðstefnu sem umhverfis- og loftslagsnefnd félagsins stóð fyrir um hamfarahlýnunina og hvað þarf að gera til að vekja athygli stjórnvalda á þeim vanda sem Ísland stendur frammi fyrir.

Ferðamannaiðnaðurinn og stóriðjan mengar mest á Íslandi
„Á Íslandi er verið stuðla að betri flokkun sorps, þá hafa stéttarfélögin eflt þekkingu er varðar umhverfismál almennt. Varðandi stóru myndina er ferðamannaiðnaðurinn stjórnlaus og veldur mikill mengun. Innviðirnir þola ekki þetta mikla álag sem ferðamannaiðnaðurinn skapar. Þá hefur landið aukið stórlega innflutning á olíu og við íslendingar höfum fleygt því fram að við séum mestu umhverfissóðar í heiminum. Mesta mengunin á Íslandi er frá stóriðjunni, álbræðslunni sem notar 85 prósent af öllu rafmagni sem framleitt er á Íslandi. Þá er ferðamannaiðnaðurinn mjög mengandi eins og ég sagði áðan en sú mengun fer vaxandi með auknum staumi ferðamanna til landsins. Þriðji stærsti mengunarvaldurinn fyrir utan stóriðjuna er svo flugið. Við þurfum að setja þessum stjórlausa vexti í ferðamannaiðnaðinum skorður með því að auka gjaldtöku, einnig þarf að leggja sanngjarna skatta á áliðnaðinn á Íslandi sem flytur allan hagnaðinn úr landi. Þetta tel ég vera nauðsynlegt að komist til framkvæmda í okkar samfélagi til að bregðast við loftslagsvandanum,“ sagði Þórarinn.


Rætt um loftslagsmálin á ráðstefnu NSO. F.v. Tomas Oskarsson, Þórarinn Eyfjörð og Súni Falkvard Selfoss.

Ríkisstjórn Svíþjóðar mætti gera betur
Ritari ST stéttarfélagsins í Svíþjóð, Tomas Oskarsson, sagði að ríkisstjórnin þar í landi virðist ekki kæra sig um loftslagsmál og það séu nokkur vonbrigði. „Í Svíðþjóð hefur verið nokkur afturför með nýrri ríkisstjórn landsins vegna þess að hún leggur ekki nógu mikla áherslu á þennan málaflokk. Talað er um að kosti kjarnorkuvera og nauðsynlega lækkun á bensínverði. Þetta þýðir í rauna að stefnan er að menga meira. Umhverfis- og sj´varútvegsráðherra Svíþjóðar, Romina Pourmokhtari, hefur ekki tjáð sig með afgerandi hætti um loftskagsvánna og ég er mjög áhyggjufullur vegna þessa afstöðuleysis ráðherrans,“ sagði Tomas Oskarsson.

Færeyingar ætla losa sig við jarðolíu sem orkugjafa
Súni Falkvard Selfoss, formaður Starvsfélagsins stéttarfélags opinberra starfsmanna í Færeyjum, segir að stefnt sé að því að orkuskiptin munu verða fólgin í því að skipta út olíu sem helst er notuð er til að kynda hús fyrir sólarsellur á þökum húsa og að reistar verði fleiri vindmyllur í hafi og einnig að raforka verði framleidd aðallega með raforkuframleiðslu í gegnum hafstrauma sem skapast vegna sjávarfalla.

„Þetta er gert með því að koma fyrir einskonar túrbínum á hafsbotni milli eyjanna sem virkja hafstraumana og sjávarföllin. Ríkisstjórnin hefur tekið þá ákvöðrum að ráðast í þessar framkvæmdir og í framtíðinni verður engin orka fengin úr jarðefnaolíu. Við hjá Starvsfélaginu höfum verið með í þessum ákvörðunum og við teljum það mikilvægt að verkalýðsfélagið okkar sé virkt og taki þátt í ákvörðunum sem varðar samfélagið okkar,“ sagði Súni Falkvard Selfoss.


Frá vinstri. Anna Linell, Tomas Oskarsson, Þórarinn Eyfjörð og Súni Selfoss.

Anne Linell sem stjórnaði pallborðsumræðunum taldi upp mikilvægi þess að þjóðir Norðurlandanna tækju forystu í loftslagsmálum og sýndu með aðgerðum að þeim væri alvara.

Frétt af vef Sameykis.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí