Hagfræðingurinn Javier Milei, sem sigraði örugglega í forsetakosningunum í Argentínu um helgina, skilgreinir sig sem anarkískan kapítalista. Þegar hann var kosinn á þing hét hann því að greiða aldrei skattahækkunum atkvæði sitt. Hann vill lágmarksríki, svokallað næturvarðaríki nýfrjálshyggjunnar þar sem hlutverk ríkisvaldsins er bundið löggæslu og landvörnum en litlu öðru. Hann vill engar takmarkanir á vopnaburð fólks né bönn við því að fólk að selja úr sér líffæri eða að fátækir foreldrar selji börnin sín. Hann er hins vegar á móti þungunarrofi, hefur enga trú á hnatthlýnun af mannavöldum og er aðdáandi bæði Donald Trump og Jair Bolsonaro.
„Í dag hefst endurreisn Argentínu, í dag líkur löngu tímabili hnignunar,“ sagði Milei í sigurræðu sinni. „Í dag tökum við aftur upp hugmyndirnar um frelsi, hugmyndirnar sem forfeður okkar vildu byggja landið á.“
Javier Milei er nýliði í pólitík, hóf þátttöku með stofnun eigin flokks fyrir tveimur árum. Hann hefur boðað dauða stjórnmálastéttarinnar sem rænt hefði almenningi yfirráðum yfir eigin lífi. Lengi lifi frelsið, hrópaði hann og hét því að gera Argentínu að stórveldi. Þau hróp eru í takt við það sem víða heyrist, að gera hvert land great again. Það heyrist ekki aðeins í Bandaríkjunum og Argentínu heldur í Kína, Indlandi, Rússlandi, Ítalíu, Frakklandi og nánast hvar sem er. Javier Milei er samt undarleg útgáfa af stjórnmálamanni, nánast eins og persóna í gamanþáttaröð um últra-hægri popúlista.
Javier Milei var alinn upp við ofbeldi og hefur afneitað foreldrum sínum, sagt þá dauða fyrir sér. Hann vann fyrir hagfræðinámi með því að keyra rútu. Hann var markmaður í þriðju deildar fótboltaliðinu Chacarita Juniors og söng ábreiður Rolling Stones með hljómsveitinni Everest. Hann kenndi hagfræði við háskóla, var ráðgjafi fyrir ýmsar hægri hugveitur og hélt úti útvarpsþætti þar sem hann hélt fram nýfrjálshyggjulegum hagfræðikennisetningum og fádæma íhaldssemi í samfélagslegum málum.
Milei er algjörlega andsnúin þungunarrofi, vill engar undantekningar gera, ekki einu sinni þegar þungun á sér stað eftir nauðgun. Þegar hann var spurður um afstöðu til þungunar tíu ára stúlku sem hafði verið nauðgun sagði hann að það yrði alltaf morð á ófæddu barni ef þungunarrof yrði leyft. Hann vill leyfa fátæku að fólki að selja úr sér líffærin og börnin sín líka. Milei er sannfærður, eins og margir últra-hægrimenn, um alheimssamsæri menningar-Marxista sem ljúga upp á fólk hlýnun jarðar, kynfræðslu í skólum, réttindabaráttu kvenna og hinsegin fólks til að knýja fram sósíalíska byltingu. Í efnahagsmálum vill hann einkavæða allt sem hreyfist og leggja af velferðarkerfi og aðra sigra verkalýðsbaráttu síðustu aldar. Ráð Milei við óðaverðbólgunni í Argentínu eru að kveikja í seðlabankanum.
Milei sigraði Sergio Massa, núverandi efnahagsráðherra, sem mætti til kosninga með 143% verðbólgu og tilheyrandi lífskjarakrísu. Massa fékk 44% atkvæða en Milei 56%. Massa er Peronisti sem árið 2015 bauð sig fram til forseta fyrir andstöðuflokk gegn Cristina Kirchner, sem þá sem nú hefur verið höfuð Peronistahreyfingarinnar. Eftir að hafa fallið út í fyrri umferð sneri Massa heim, í flokkinn sem hann hafði gagnrýnt og tókað klifra upp metorðastigann þar til hann var tilnefndur sem fjármálaráðherra og svo forsetaframbjóðandi.
Milei stofnaði flokk sinn fyri tveimur árum, La Libertad Avanza sem þýða mætti sem Frelsið brýst fram. Þetta er nýfrjálshyggjuflokkur á sterum sem vill lágmarksríki sem sinnir fáu öðru en hervörnum gagnvart öðrum ríkjum og löggæslu innanlands. Markmiðið er að lækka skatta og afnema, leggja af allt sem kalla mætti félagslegt velferðarkerfi og félagsleg réttindi. Stefna Milei og flokks hans mun búa til alræði hinna ríku sem munu fá öll völd í sínar hendur, allar auðlindir, eignir og fé almennings.
Flokkur Milei hefur boðið fram til þings og sveitastjórna en ekki náð umtalsverðum árangri, fékk 2 þingmenn í fulltrúadeildina af 257 í kosningum 2021. Aðeins betur gekk í kosningu til borgarstjórnar Buenos Aires sama ár, þar sem flokkurinn fékk 5 fulltrúa af 60. Nú fékk flokkurinn hins vegar 22% atkvæða í þingkosningunum. Á þinginu sitja 130 þingmenn en flokkur Milei og stuðningsflokkar hans fengu aðeins 35 sæti. Það er því ekki víst að Milei nái stefnu sinni í gegnum þingið. Hann varaði þá þingmenn við sem ætluðu að standa í vegi fyrir stefnu sinni, sagði að henni yrði hrynnt í framkvæmd af hörku og ákveðni.
Varaforsetaefni Milei er þingkonan Victoria Villarruel, sem flokka má sem stæka íhaldskonu. Hún skrifaði undir Madridarsáttmála hægrimanna eins og Milei. Þetta er yfirlýsing í anda and-kommúnisma kalda stríðsins sem lýsir vinstrinu á Spáni og spönskumælandi löndum Ameríku sem skipulagðri árás á lög, eignarétt og frelsi einstaklingsins, skipulögð af stjórnvöldum á Kúbu og fjármögnuð af eiturlyfjahringjum. Villarruel hefur skrifað bækur og haldið fyrirlestra um sýn sína á argentínska nútímasögu, sem hún lýsir sem einskonar vandaráni vinstrisinnaðra hryðjuverkamanna sem hafi náð völdum og áhrifum innan stjórnmála, fjölmiðlunar og stofnana samfélagsins. Villarruel réttlætir í reynd valdarán hersins 1976 og handtöku, pyntingar og morð herforingjanna á vinstrisinnum á tímabilinu sem kallað hefur verið skítuga stríðið í Argentínu.
Milei er kallaður Peluca eða hárkollan vegna sérviskulegrar hárgreiðslu. Hann sver sig því í ætt við Trump og Boris Jonson að því leiti. Hann er ókvæntur og stærir sig að kynferðislegri virkni, segist vera tantra-kynlífsleiðbeinandi og meistari frjálsra ásta. Hann á hund sem hann segist líta á sem son. Sá heitir Conan og hefur Milei klónað hann nokkrum sinnum. Klónanna nefnir hann í höfuð á hagfræðingum sem hann dáir. Einn þeirra heitir til dæmis Milton eftir Milton Friedman.
Hvers vegna er þessi maður valkostur í argentínskum stjórnmálum í dag? Þar er nú, sem oft áður, óðaverðbólga og stórkostleg lífskjarakreppa meðal meginþorra almennings. Stór hluti kjósenda upplifir sig enn og aftur svikin af stjórnmálaelítunni sem lofar almenningi ætíð öllu fögru en svíkur svo allt, þjónar fyrst og síðast sjálfri sér og auðstéttinni.
Javier Milei tekur við sem forseti 10. desember næstkomandi. Þá hefst ný tíð í argentínskum stjórnmálum. Myndin er af Milei og Villarruel fagna sigri, hægri sinnuðustu forystu sem sést hefur í Suður-Ameríku frá tímum herforingjastjórnanna. Og í mörgu er stefna Milei vel hægra megin við þær.