Á miðvikudag birti mbl.is knappt viðtal við Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra um stefnu hennar í útlendingamálum. Tilefni viðtalsins er mál Isaac Kwateng, vallarstjóra Þróttar, sem er fæddur í Gana. Hann sótti um alþjóðlega vernd á landinu árið 2017, var brottvísað nú í haust en er væntanlegur til landsins aftur, að fengnu atvinnu- og dvalarleyfi. Dómsmálaráðherra notaði mál hans sem dæmisögu um hvernig hún vilji ekki „blanda þessum kerfum saman, annars vegar verndarkerfinu og hins vegar dvalar- og atvinnukerfinu.“
Þá ítrekaði ráðherrann það álit sitt að „ekki sé til neitt sem kallist umborin dvöl“ í samhengi við fólk sem hefur verið neitað um vernd. Ráðherrann segir að fólk sé ekki í „umborinni dvöl“ að liðnum 30 daga fresti eftir það, heldur „ólöglegri“. Þar á hún við þau sem hefur verið úthýst úr húsnæðissúrræðum yfirvalda án þess að brottvísun sé fyrirliggjandi eða möguleg, er bannað að vinna fyrir sér og hefst því við á landinu í réttindalausu limbói.
Stækka stoðdeildina, ráða starfsfólk
Í framhaldi af þeim ummælum spurði blaðamaður mbl.is um kostnað stjórnvalda við brottvísanir. Guðrún sagðist ekki getað svarað til um heildarkostnaðinn, meðal annars vegna þess að um þessar mundir séu stjórnvöld að „styrkja stoðdeild ríkislögreglustjóra“. Stoðdeild ríkislögreglustjóra er deild með aðeins eitt hlutverk, sem er að framkvæma brottvísanir. Deildin hefur aðsetur í sama húsnæði og Útlendingastofnun, við Bæjarhraun í Hafnarfirði, og má líta á sem nokkurs konar framlengingu á hennar, eða þann hluta sama kerfis sem hefur valdbeitingarheimildir: þegar Útlendingastofnun úrskurðar um brottvísun sér Stoðdeildin um að færa manneskjurnar sem eiga í hlut um borð í flugvél og af landinu.
„Við erum að styrkja stoðdeild Ríkislögreglustjóra,“ sagði Guðrún, „en þar erum við í rauninni að búa til deild sem heldur mjög þétt utan um þessa einstaklinga sem fá hér synjun. Þar höfum við verið að ráða starfsfólk og verið að stækka þá deild þannig að við erum bara ekki komin með á hreint hver endanlegur kostnaður við hana verður.“
Heimferðin „farsæl, örygg og trygg“
Að því sögðu lét hún í veðri vaka að stoðdeildin gegni nokkurs konar þjónustuhlutverki gagnvart þeim sem hún neyðir burt af landinu: „Vitaskuld er eins og þvingaður brottflutningur gríðarlega dýr og þess vegna með því að styrkja stoðdeild ríkislögreglustjóra að þá er það hlutverk þeirra að vera í mjög góðu sambandi við þá einstaklinga sem fá synjun hér á landi og vera í góðu samtali og samvinnu við það fólk að það fari sjálfviljugt af landi brott.“ Hún sagði að verið væri að þjálfa fólk upp í „þessu verklagi“ og hljómaði eins og sölufulltrúi ferðaskrifstofu, ef marka má blaðamann mbl.is, sem hafði eftir ráðherranum að „úr séu að verða mjög hæfir sérfræðingar sem aðstoði fólk með sem bestum hætti svo heimferð þess geti orðið farsæl, örugg og trygg.“
Loks bætti ráðherrann við: „Þetta er auðvitað aukinn kostnaður en það er mitt mat að það borgi sig að halda vel utan um þá einstaklinga sem þurfa að fara héðan og halda góðu sambandi við fólkið, upplýsa það um réttindi sín og upplýsa það einnig um hvernig heimferðin fer fram. Þannig náum við meiri árangri.“
Heimild: mbl.is.