Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Woke, ójöfnuður

Woke, ójöfnuðurarrow_forward

S04 E082 — 06/21/2023

Við förum yfir fréttir dagsins en ræðum síðan við Helgi Eiríkur Eyjólfsson doktorsnema um aukinn ójöfnuð sem lesa má út úr Pisa-könnunum á hæfni íslenskra barna. Svo virðist sem stéttaskipting sé að aukast, að börn af heimilum verkafólks nái minni árangri í skólum í dag en fyrr á öldinni. Þá kemur Njörður Sigurjónsson prófessor um woke-bylgjuna og átökin samsvara henni í skautuðum heimi. Tilefni er uppfærsla óperunnar á Madame Butterfly og Þjóðleikhússins á Sem á himni.

Stjórnarslit og sjúkrasaga

Stjórnarslit og sjúkrasagaarrow_forward

S04 E081 — 06/20/2023

Við förum yfir fréttir dagsins og höldum því áfram í samtali við Sigurjón Magnús Egilsson blaðamann og fyrrum þingfréttamanns. Er ríkisstjórnin að springa? Eru allir flokkarnir að gefast upp á þessu samstarfi? Þola ríkisstjórnarflokkarnir kosningar? Elísa Guðrún Brynjólfsdóttir hefur glímt við átröskun og segir okkur sjúkrasögu sína.

Gjáin, smálönd, flóttafólk & guðleysi

Gjáin, smálönd, flóttafólk & guðleysiarrow_forward

S04 E080 — 06/19/2023

Eftir fréttir dagsins ræðum við við Evu H. Önnudóttur prófessor um gjánna, milli þings og þjóðar. Er hún til? Síðan kemur Þorvaldur Gylfason prófessor og heldur því að fram að Ísland sé alls ekki of lítið, að smá lönd standi sig betur en stór lönd. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins halda því fram að flóttamannastraumurinn sé að kaffæra grunnkerfum samfélagsins. Er þetta rétt? Voru grunnkerfin kannski veikluð fyrir? Til að ræða þetta koma að Rauða borðinu Nína Helgadóttir teymisstjóri hjá Rauða krossinum, Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna. Í lok þáttar kemur Kristinn Theódórsson tæknistjóri og segir frá átökum guðleysingja og kristinna fyrr á öldinni, sem oft voru hörð. Og hvers vegna hann er efins um að hann hafi alltaf haft rétt fyrir sér í þeim deilum.

Helgi-spjall: Steindór J. Erlingsson

Helgi-spjall: Steindór J. Erlingssonarrow_forward

S04 E079 — 06/17/2023

Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Steindór J. Erlingsson frá áratuga langri reynslu sinni af þunglyndi og sjálfsvígshugsunum, frá áföllum, sálarháska, raflostmeðferðum, lyfjum og annarri læknismeðferð sem hann hefur mátt þola. En líka frá sigrum, von og gjöfum lífsins. Þrátt fyrir erfið veikindi hefur Steindór verið ötull baráttumaður fyrir réttindum og mannvirðingu.

Vikuskammtur: Vika 24

Vikuskammtur: Vika 24arrow_forward

S04 E078 — 06/16/2023

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Elín Oddný Sigurðardóttir verkafnastýra, Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir tölvukona, Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri og Ísak Jónsson verkamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af átökum, stríði, verðbólgu og versnandi kjörum.

Vopnaburður, ríkisborgararéttur og skautun

Vopnaburður, ríkisborgararéttur og skautunarrow_forward

S04 E077 — 06/15/2023

Eftir fréttir dagsins heyrum við í Helen Ólafsdóttur öryggisráðgjafa hjá Sameinuðu Þjóðunum um afleiðingar af vopnvæðingu lögreglunnar. Og ræðum á eftir við þau Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðing og Fjölnir Sæmundsson formann Lögreglufélagsins um vopnvæðinguna og eðli löggæslu. Victoria Bakshina fékk ríkisborgararétti á Íslandi um daginn og vegabréf í dag. Við ræðum við splunkunýjan Íslending. Í lok þáttarins kemur Arngrímur Vídalín bókmenntafræðingur og segir okkur frá útlendingaandúð sem nær langt aftur fyrir nýlendutímann.

Kynseginleiki og byltingar

Kynseginleiki og byltingararrow_forward

S04 E076 — 06/14/2023

Eftir fréttir dagsins kemur Þorgerður J. Einarsdóttir prófessor að Rauða borðinu og fjallar um kynseigin veruleika í skautuðu samfélagi, segir okkur frá baráttu og sigrum en líka viðhorfum almennings. Og spáir í hvers vegna mál tengd kynseginleika eru svona eldfim í skautuðu samfélagi. Þá kemur Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur að borðinu og segir okkur frá forræðiskreppunni í Evrópu eftir fyrra stríð og átökunum sem henni fylgdu. Og spáir í líkindi þess tíma við okkar tíma.

Julian Assange & Klausturmálið

Julian Assange & Klausturmáliðarrow_forward

S04 E075 — 06/13/2023

Við förum yfir fréttir dagsins og fáum síðan Kristinn Hrafnsson ritstjóra Wikileaks til að skýra stöðuna í máli Julian Assange sem setið hefur í fangelsi árum saman og verður nú líklega framseldur frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Við ræðum síðan þetta mál við Ögmund Jónasson fyrrum þingmann og formann BSRB. Þorstein Siglaugsson hagfræðing og formann Málfrelsis, og Aðalstein Kjartansson blaðamann og varaformann Blaðamannafélagsins. Við fáum svo Báru Halldórsdóttur í heimsókn og ræðum við hana um Klausturmálið af gefnu tilefni.

Rauða borðið snýr aftur

Rauða borðið snýr afturarrow_forward

S04 E074 — 06/12/2023

Rauða borðið snýr aftur í kvöld eftir hlé vegna innbrots og þjófnaðar á tækjum Samstöðvarinnar. Eftir stutt fréttayfirlit koma að Rauða borðinu þau Sonju Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB, Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og ræða kjaramál, nýgerða samninga og þá sem fram undan eru. Hvað vill launafólk? Og hvernig ætla félögin að sækja það sem fólkið vill? Hafrannsóknarstofnun birti veiðiráðgjöf sína fyrir helgina, svo til óbreyttan afla frá fyrra ári. Jón Kristjánsson fiskifræðingur kemur að Rauða borðinu og gagnrýnir þessa ráðgjöf, en einkum þann grunn sem hún byggir á. Hann heldur því fram að við gætum veitt tvöfalt meira.

<strong>AGS, Borgin, gervigreind, sjúkrasaga og félagsklegir törfrar</strong>

AGS, Borgin, gervigreind, sjúkrasaga og félagsklegir törfrararrow_forward

S04 E073 — 05/09/2023

Í kvöld sendum við af veikum mætti, löskuð af innbrotinu í stúdíóið. Höfum stuttan inngang en notum síðan fjarfundabúnað til að ræða við Ásgeir Brynjar Torfason um úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Við hringjum líka í Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa og heyrum af borgarstjórnarfundinum í dag og um stöðu sveitarfélaganna. Jón Guðnason er dósent við gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík og við fáum hann til að lýsa gervigreindinni og hættunni sem kann að stafa af henni. Þá endurflytjum við tvö viðtöl, annars vegar sjúkrasögu Margrétar Lilju Arnheiðardóttir og hins vegar útlistun Viðars Halldórssonar á félagslegum töfrum.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí