Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Eftir innbrotið: Brot af því bestaarrow_forward
Í kvöld sendum við af veikum mætti, höfum stuttan inngang en flytjum síðan fjögur mikilvæg viðtöl frá síðustu dögum sem draga vel fram aukna misskiptingu í samfélaginu: Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur BHM ræðir um methagnað fyrirtækja á sama tíma og verðbólgan grefur undan lífskjörum almennings. Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu segir okkur frá rannsókn sinni sem sýnir að æ fleiri fjölskyldur ná ekki endum saman, æ fleiri falla í fátækt og þetta er fólk úr sömu hópunum og höfðu það skítt fyrir. Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðingur í fjármálum ræðir um óstjórn ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir okkur hvers vegna hann vill mótmæla á næsta á laugardag.
Helgi-spjall: Ragnar Aðalsteinssonarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Ragnar Aðalsteinsson baráttusögu sína, hvernig ofbeldi ríkisvaldsins gegn mótmælendur á Austurvelli 30. mars 1949 breytti stjórnmálahugmyndum hans, hversu erfiðlega hefur reynst að fá dómstóla til að viðurkenna félagsleg réttindi fólks, rétt til tjáningar og mótmæla. Ragnar ræðir samfélagið sem hann spratt úr og stöðuna í dag, hnignandi lýðræði, vaxandi ógn vegna ófriðar og loftlagsvár.
Vikuskammtur: Vika 18arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Birgir Þórarinsson aka Biggi veira, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Jóhann Dagur Þorleifsson og Þórhildur Þorleifsdóttir og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af fátækt, stríði, gróða og hræringum
Fátækt barna, sjúkrasaga, ást og sveitarfélögarrow_forward
1. Fréttir dagsins. 2. Við ræðum um fátækt barna við Kolbeinn Stefánsson. 3. Atli Þór Þorvaldsson segir okkur sjúkrasögu sína. 4. Rósa Magnúsdóttir segir okkur frá ástum á tímum kalda stríðsins. 5. Eva Marín Hlynsdóttir fjallar um sveitarfélög, veikleika þeirra og styrk.
Ójöfnuður, hlaðvörp, verðbólga, óréttlæti og feminískar fréttirarrow_forward
1. Fréttir dagsins. 2. Varða, rannsóknarmiðstöð verkalýðsins, birti í dag ömurleg tíðindi, æ fleiri fjölskyldur ná ekki endum saman, æ fleiri falla í fátækt og þetta er fólk úr sömu hópunum og höfðu það skítt fyrir: Fjölskyldur einstæðra foreldra, leigjenda, innflytjenda og öryrkja. Kristín Heba Gísladóttir í Vörðu segir okkur frá stöðunni. 3. Í gegnum hlaðvörp er dregin mikil umræða, æ meiri í takt við veikingu fjölmiðla. Hlaðvarpsstjórarnir Gísli Freyr Valdórsson, Þórarinn Hjartarson og Guðmundur Hörður ræða við okkur um hlaðvörp. 4. Ólafur Margeirsson hagfræðingur segir að bankarnir kyndi undir verðbólgu með vitlausum lánveitingum. Hann skýrir hvers vegna og hvernig megi stoppa þetta. 5. Rannsóknir sýna að tilfinning fólks fyrir óréttlæti fari vaxandi meðal landsmanna. Jón Gunnar Bernburg hefur rannsakað afstöðu almennings og ræðir vaxandi tilfinningu fyrir óréttlæti og metur viljann til mótmæla. 6. María Pétursdóttir, Þórdís Bjarnleifsdóttir og Sara Stef. Hildar ræða fréttirnar út frá feminísku sjónarhorni.
Kjaradeilur, gróðaverðbólga, borgin og aldursfordómararrow_forward
1. Fréttir dagsins. 2. Guðbjörg Kristmundsdóttir formaður Verkalýðsfélags Keflavíkur, Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambandsins og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins koma að Rauða borðinu og meta stöðuna. Hvað þurfa stjórnvöld að gera til að verja fólk fyrir skaðsemi verðbólgunnar. 3. Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur ræðir um methagnað fyrirtækja á sama tíma og verðbólgan grefur undan lífskjörum almennings. 4. Það var átakafundur í borgarstjórn. Sanna Magdalena Mörtudóttir og Trausti Breiðfjörð Magnússon koma að Rauða borðinu og gefa skýrslu. 5. Stefán Erlendsson vann mál gegn Menntaskólanum við Sund vegna mismunar vegna aldurs. Við ræðum við hann um aldursfordóma.
Helgi-spjall: Egill Ólafssonarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Egill Ólafsson okkur hvernig hann hefur það og hvernig hann hefur haft það, hvernig er að vera elskaður og sækjast eftir meiri ást, hverjir voru áar hans og frá fólki sem hefur haft áhrif á hann.
Vikuskammtur: Vika 17arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Tryggvi Rúnar Brynjarsson og Þóra Kristín Þórsdóttir og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af glæpum, ofbeldi og dauða.
Dýrtíðin og óstjórn í efnahags- og loftlagsmálumarrow_forward
1. Fréttir dagsins. 2. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna, Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður ÖBÍ, Laufey Líndal Ólafsdóttir formaður Pepp, samtaka fólks í fátækt og og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna ræða saman um stöðu almennings á tímum dýrtíðar, vaxtahækkana og lífskjarakreppu. 3. Ásgeir Brynjar Torfason ræðir um óstjórn ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. 4. Hjalti Hrafn Hafþórsson ræðir um óstjórn ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.
Verkfall BSRB, fangar, mótmæli, feminískar fréttirarrow_forward
1. Fréttir dagsins. 2. Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir frá strandi viðræðna við sveitarfélögin og boðuðum verkföllum. Og metur ástandið, dýrtíð og hækkandi vexti, skertan kaupmátt, grimma húsnæðiskreppu. Hvenær verður komið nóg? 3. Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Aðstöðu segir okkur frá stöðu fanga á Íslandi. 4. Við höldum áfram að ræða mótmæli, hvert er gagnið af þeim, að hverjum beinast þau. Nú kemur ungt fólk að Rauða borðinu: Guðni Öfjörð, Karl Héðinn Kristjánsson og Elí Hörpu- og Önundarbur. 5. Við segjum feminískar fréttir. Það gera María Pétursdóttir, Margrét Pétursdóttir, Sara Stef. Hildar og Hjálmar Friðriksson.