Ögmund og Katrínu greinir á 

„Öflugasti einstaki talsmaður Íslands í þessu örlagamáli í erlendum fjölmiðlum var án efa Ólafur Ragnar Grímsson. Framlag hans reyndist Íslendingum afar mikilvægt.“

Þetta skrifar Ögmundur Jónasson, fyrrverandi innanríkisráðherra, í pistli þar sem hann fjallar um hverjir það hafi verið sem töluðu máli Íslands í Icesave-deilunni. Vísar Ögmundur til þess að deilan hafi verið til umfjöllunar í fjölmiðlum að undanförnu „og þá hver hafi gert hvað hvað og sagt hvað“.

Í viðtali í þættinum Spursmál á mbl.is síðastliðinn mánudag lýsti Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi, fyrrverandi forsætisráðherra og flokkssystir Ögmundar, því að hún teldi að rík­is­stjórn Jó­hönnu Sig­urðardótt­ur hafi talað máli Íslands og ís­lenskra hags­muna á alþjóðleg­um vett­vangi í kjölfar fjármálahrunsins. Í þættinum er vísað til orða Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, sem oft og ítrekað hefur fullyrt að hann hafi verið eini málsvari Íslands á erlendum vettvangi.

Meðal annars er vísað til eftirfarandi orða Ólafs Ragnars úr viðtali í nóvember á síðasta ári: „Að þótt margt megi segja gott um þessa stjórn Jó­hönnu og Stein­gríms þá van­ræktu þau al­gjör­lega að tala við fjöl­miðla heims­ins […] Ég lenti í því sem for­seti þarna í rúmt ár eða jafn­vel leng­ur að vera eini mál­svari Íslands á alþjóðleg­um vett­vangi. Það er reynd­ar ekki hluti af starfs­skyld­um for­set­ans.“ 

Þegar gengið var á Katrínu varðandi þessa túlkun Ólafs Ragnars svaraði hún því til að hún teldi að ríkisstjórnin hefði gengið fram í þessum málum. „Rifja ég upp ut­an­rík­is­ráðherra í þeim mál­um og fleiri ráðherra sem gengu þar fram fyr­ir skjöldu og voru einnig að halda uppi vörn­um fyr­ir Ísland. Þess vegna segi ég að mér finnst mik­il­vægt að for­set­inn geti nýtt sína stöðu á alþjóðavett­vangi ef þörf er á,“ sagði Katrín

Málstaður Íslands mismunandi skilgreindur 

Ögmundur gerir í grein sinni ákveðnar athugasemdir við þetta, þó hann vísi ekki beint til Katrínar. Segir hann að allir sem hafi tjáð sig á þessum tíma telji sig væntanlega hafa talað máli Íslands og hann efist ekki um að það sé rétt. „En það breytir því ekki að málstað Íslands skilgreindu menn með mismunandi hætti.

Þáverandi ríkisstjórn, Samfylkingar og VG og reyndar einnig sú sem áður sat, það er stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, taldi að okkur bæri að ganga að kröfum Breta og Hollendinga og semja um greiðslur úr ríkissjóði Íslands og auk þess greiða vexti og málskostnað.“

Segir Ögmundur að þau sem hafi viljað fallast á að gefa eftir í málinu telji nú sum hver að deilan hafi litlu máli skipt þar að eignir þrotabúanna hafi dugað til að greiða innistæðueigendum. „Þá er horft framhjá himinháum vaxta- og málskostnaði sem nam 5,8 % af vergri landsframleiðslu í fyrsta Icesave samningnum að ógleymdri óvissunni því enginn vissi fyrir víst hvað þrotabúin höfðu að geyma.“

Ögmundur skrifar jafnframt að þegar horft sé til þeirrra sem gagrýndu Icesave samningana utan Íslands hafi margir haft sig í frammi og því fari fjarri að Ólafur Ragnar hafi verið einn um að halda andófinu uppi. Nefnir Ögmundur InDefence hópinn og bætir við að sá félagsskapur hafi að því er virðist skipulega verið þagaður í hel. Fleiri hafi svo sem komið að umræðunni á alþjóðavettvangi en það breyti því ekki að Ólafur Ragnar hafi verið öflugasti einstaki talsmaður Íslands í málinu í erlendum fjölmiðlum. 

„En í mínum huga snerist Icesave deilan um annað og meira en peninga, hún snerist um sjálfan grundvöll stjórnmálanna. Þetta mál snerti mig sjálfan með mjög beinum hætti því það varð til þess að ég sá mig tilknúinn að segja af mér sem ráðherra og átti málið eftir að vinda upp á sig í langvinnum deilum um það sem ég vil kalla prinsipmál í stjórnmálum,“ skrifar Ögmundur en pistil hans í heild má lesa hér. 

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí