Ástráður með nýja miðlunartillögu

Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu í sæmilegri sátt við Samtök atvinnulífsins og Eflingar. Tillagan felur í sér það sama og tillaga Aðalsteins Leifssonar og felur í sér afturvirkni, svo félagar í Eflingu fá allar hækkanir frá 1. nóvember. Eini munurinn er að hótelþernu á hótelum og gistihúsum fá hækkun um einn launaflokk og olíuflutningabílstjórar frá hækkun, hóparnir tveir sem fóru í verkfall.

Það var afturvirknin sem stóð í SA og kom í veg fyrir að tillagan hefði verið lögð fram fyrr. SA hefir haft þá stefnu að þau verkalýðsfélög sem fara í verkföll fái ekki afturvirkni.

Áður en tillagan var lögð fram gerðu SA og Efling samkomulag um ýmis atriði sem ekki eru í tillögunni. Þetta eru viðræðuáætlanir um lagfæringar á töxtum og vinnuskilyrðum smærri hópa og önnur atriði sem ekki er hægt að troða inn í miðlunartillögu.

Atkvæðagreiðslan um tillöguna fer fram hjá embætti sáttasemjara. Efling og SA munu því afhenda sáttasemjara kjörgögn, þ.e. félagatalið. Frá og með hádeginu í dag falla niður verkföll. Tillagan verður samþykkt nema meirihluti felli hana og til þess þarf meirihlutinn að vera í það minnsta fjórðungur af félagsfólki í Eflingu og félagsgjöldum í SA. Atkvæðagreiðsla hefst á föstudaginn og lýkur á miðvikudaginn í næstu viku, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars.

Á fundi með fréttamönnum ítrekaði Ástráður að samkvæmt lögum um vinnudeilur má forysta félaga ekki andmæla miðlunartillögunni með þeim hætti að sáttasemjari geti túlkað það sem afvegaleiðingu.

Þetta er launatafla SGS og sú sem miðlunartillagan inniheldur:

FlokkurByrjun1 ár3 ár5 ár
Launaflokkur 4402.235406.257412.351420.598
Launaflokkur 5404.568408.614414.743423.038
Launaflokkur 6406.914410.983417.148425.491
Launaflokkur 7409.275413.368419.568427.960
Launaflokkur 8411.648415.764422.001430.441
Launaflokkur 9414.036418.176424.449432.938
Launaflokkur 10416.437420.601426.910435.449
Launaflokkur 11418.853423.042429.387437.975
Launaflokkur 12421.282425.495431.877440.515
Launaflokkur 13423.725427.962434.382443.069
Launaflokkur 14426.183430.445436.902445.640
Launaflokkur 15428.655432.942439.436448.224
Launaflokkur 16431.141435.452441.984450.824
Launaflokkur 17433.642437.978444.548453.439
Launaflokkur 18436.157440.519447.126456.069
Launaflokkur 19438.687443.074449.720458.714
Launaflokkur 20441.231445.643452.328461.375
Launaflokkur 21443.790448.228454.951464.050
Launaflokkur 22446.364450.828457.590466.742
Launaflokkur 23448.953453.443460.244469.449
Launaflokkur 24451.557456.073462.914472.172

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí