Hraðra breytinga þörf á húsnæðum framhaldskólanna svo bregðast megi við breyttu landslagi í skólamálum – fleiri velja starfsnám umfram hefðbundið bóknám
Samkvæmt spálíkani Hagstofunnar bendir allt til að framhaldskólanemendum í starfsnámi fjölgi um tæp tuttugu prósent næstu 5–6 árin.
Á sama tíma fækkar nemendum sem leggja fyrir sig bóknám um 510 nemendur, eða 3 prósent. Bregðast þarf hratt við.
Í morgun kynnti Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, niðurstöður greinargerðar um húsnæðisþörf í framhaldsskólum.
Fagnaðarefni segir ráðherra sem hefur þó áhyggjur af stöðu bóknáms til langstíma litið,
„Stækkun ýmissa skóla er í farvegi en á sama tíma þurfum við að vinna áætlun um hvernig við mætum fækkunum í bóknámi,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra í morgun.
Ráðast þarf í umfangsmiklar framkvæmdir til viðbótar víðsvegar um landið til að mæta þörfinni. Aðgerðir sem ekki verður farið í á einu bretti samkvæmt ráðherra og því geri greinargerðin áætlun til næstu 10 ára.